Wednesday, January 28, 2015

Japan Festival 2015

Var að klára tvær næturvaktir sem gengu bara vel. Í dag var sofið út, kíkt í bónus og fékk svo kvöld heimsókn frá yndislegri vinkonu sem kom með nammi, hoho.



 Verð aðeins að ræða um kurteisi og kommon sense, sumir kunna það bara ekki. Í fyrsta lagi setur maður þarna stikuna aftast þegar maður er búinn að raða öllu ofan á afgreiðsluborðið svo afgreiðslumaðurinn skilji hvað tilheyrir þér og í öðru lagi genguru frá kerrunni sem þú varst með! Gæjinn á undan mér setti ekki stiku og ég neitaði að setja hana niður fyrir hann þar sem ég komst ekki einu sinni að, hann var næstum búinn að borga fyrir klósettpappír og nautahakk fyrir mig. Svo hafði einhver á undan honum skilið eftir kerruna sína, ég horfi á hann horfa á kerrurnar og gefa svona "ahh fuck it" svip og labbar svo bara í burtu! Þarna stend ég með þriðju kerruna föst! Dauðþreytt eftir næturvaktir og að drepast úr flensu, ugh. Benti á gæjann og sagði við afgreiðlumanninn eða strákinn réttara sagt og sagði "Djös douchbag!". Bað hann svo um að hjálpa mér með kerrurnar því ég væri föst, hann hló bara og aðstoðaði mig. Þannig já.. sumir halda bara að þau séu "Palli einn í heiminum".



Hlakka svo til næstu helgi því þá er "Japan Festival" uppí HÍ. Reyni alltaf að fara og í ár gat ég skipt úr morgunvakt í kvöldvakt þannig ég kemst vúhú!! Hátíðin er frá 13 til 17 og ætla ég að vera mætt á slaginu. Held ég hef farið svona þrisvar og það er alltaf góð skemmtun. Finnst td. æði að fá nafnið mitt skrifað á japönsku, svo falleg skrautskrift. Endilega mætið og kynnist japanskri menningu.




-hannaleam.

Í tilefni hátíðarinnar langar mig að deila með ykkur japanskt lag sem var notað sem "opening song" í "Guilty Crown" (anime). Eitt besta "opening song" ever, að mínu mati. Mæli með þessum þáttum! -Supercell: My dearest.


Official music video:



Guilty Crown Op:


No comments:

Post a Comment