Showing posts with label andlegahliðin. Show all posts
Showing posts with label andlegahliðin. Show all posts

Wednesday, June 10, 2015

Gott að hafa í huga


Ekki bíða eftir því að stormurinn líði hjá heldur lærðu að dansa í rigningunni, mælti einhver -einhvern tímann. Ég þarf að minna mig á það á hverjum degi því aðstæður virðast stundum aldrei ætla að breytast og lífið virðist stundum vera eintóm bið eftir einhverju betra. Það er svo auðvelt að detta inn í þetta hugarfar „Á morgun, í næstu viku, í næsta mánuði“.  Núið er það sem skiptir mestu máli. Að eiga nóg af peningum og geta keypt og gert það sem þú villt er ekki það sem veitir fólki hamingju heldur andlega líðanin og fólkið sem þú velur að hafa í kringum þig. Gott er að þjálfa hugann og finna innri ró með td. hugleiðslu og öndunaræfingum. Stoppa aðeins, finna þig í núinu og muna  að allt breytist einhverntímann. 



Hérna eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga:


  • Ekki lifa fyrir morgundaginn, eða þann næsta, lifðu í núinu. Njóttu þess að vera til.
  • Vertu þakklát/ur fyrir allt sem þú átt. Þótt þú eigir ekki nýjustu skóna áttu í minnsta kosti fætur sem bera þig hvert sem þú villt fara og augu sem sjá.
  • Lærðu að vera ein/n með sjálfri/um þér. Ef þú getur ekki notið þess að eiga stund með sjálfri/um þér afhverju ætti þá einhverjum öðrum að langa það?
  • Þú átt bara einn líkama og þú verður að hugsa vel um hann. Hollt matarræði, einhverskonar hreyfing og góður svefn eru lykilatriði.
  • Mundu að brosa. Það er svo mikilvægt að geta hlegið af hversdagsleikanum og vera ekki of alvarleg/ur.
  • Stattu með sjálfri/um þér. Sjálfstraust er virkilega aðlaðandi eiginleiki, ekki vera feimin/n við að tjá skoðanir þínar og ekki hafa of miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst.
 

Það má bæta endalaust við þennan lista en ég læt þetta duga.

Það er mikil vinna að sinna hlutverkum okkar í daglegu lífi en þau geta verið vinkona, maki, vinnufélagi, móðir, dóttir, leiðbeinandi o.s.frv. þannig leyfum okkur að anda. Gerum okkur grein fyrir því að við erum mannleg, við og allir aðrir geta gert mistök en lífið heldur alltaf áfram.



-hannaleam.