Í gær vann ég morgunvakt, flýtti mér svo heim, tók til, þreif íbúðina, eldaði og tók svo á móti gestum. Gærkvöldið var mjög skemmtilegt, það var í minnsta kosti mikið hlegið. Spilaði BezzerWizzer í fyrsta skipti og fannst það fínt. Enduðum kvöldið á grilluðum samlokum og "Jumanji" sem er algjör klassík sem allir eiga að vera búnir að sjá, Robbie Williams uppá sitt besta og Kirsten Dunst ennþá lítil og saklaus. Í dag var svo kíkt í kolaportið en það var ekki mikið í boði, keypti bara eitt osso fínt hlunka hálsmen á 500kr, win. Skemmtileg helgi með yndislegu fólki, hvað meira er hægt að óska sér? Djók helling haha. Sorry aulahúmor er dösuð eftir helgina.
Vorum að klára að horfa á kvikmyndina "Lets be Cops" og shiii djöfull er hún góð! Ég og Sigvaldi grenjuðum úr hlátri og tónlistin er sko ekki af verri endanum, enda kveikti ég strax og tölvunni og náði í lögin sem ég fílaði. Er strax byrjuð að skipuleggja afmælið mit þótt það sé ekki fyrr en í næsta mánuði. Finnst bara svo næs að vera búin að öllu sem ég get gert strax, minna stress! Það er svo gott að vera skipulögð, ég td. skil ekki hvernig fólk kemst í gegnum lífið án þess að eiga dagbók! Eða skrifa í dagbókina í símann, ég skrifa allt niður eins og vaktirnar mínar, kaffihúsadeit, muna að hringja einhvert eða að ég eigi tíma hjá heimilislækni. Makes life a lot easier. Allavega er ég búin að redda smá skraut/glingri fyrir afmælischillið (eins og ég kalla það) og er að downloada lögum til að búa til playlist, svo er margt annað sem þarf að huga að eins og td. veitingar! En það er næs að hafa nóg tíma, það verður allt perfect fyrir afmælið hoho. Kv. ein sem finnst gaman að eiga afmæli.
-hannaleam.

No comments:
Post a Comment