Það er loksins kominn febrúar! Það er klárlega besti mánuðurinn því þann 16.feb er bolludagurinn, þann 17.feb er sprengidagurinn, 18.feb er öskudagurinn og afmælið mitt.
Ég á semsagt afmæli 18.febrúar og verð 23ára. Ég hef alltaf verið mikið afmælisbarn og ólst upp við það að vera í fallegum kjól á afmælinu mínu, fá köku með kertum og stóra veislu. Filipseyingar kunna sko að halda uppá afmæli enda eru afmælisveislurnar hjá börnunum þeirra liggur við einsog fermingarveisla. Dýrindis matur og góður félagsskapur. Hef ákveðið að hafa smá teiti hjá mér og hef nú þegar boðið nokkrum vel völdum skvísum, gott að hafa góðan fyrirvara! Skipulagningar fríkið ég er löngu byrjuð að vinna í hlutum fyrir veisluna. Hef einnig gaman af því að búa til óskalista við allskonar tilefni eins og þið hafið kanski tekið eftir þannig ég ákvað að gera einn slíkan fyrir þá sem ættu kanski í vandræðum með að finna eitthvað handa mér hoho. Auðvitað er maður þakklátur fyrir ekkert eða eitthvað, en bara gaman að fá eitthvað sem manni langar raunverulega í :)
1. OLUNDA mynd 30x30 cm fiðrildi - IKEA 1950kr. 2. Luns skrif-/segultafla 48x71 cm svart - Ikea 3890kr. 3. Blanda Blank skál 36cm ryðrítt stál - Ikea 1990kr. 4. Lee Stafford My Squeaky Clean Paddle Brush - Hagkaup 1569kr. 5. Berry Delight - Indiska ca800kr. 6. Sedlig salatáhöld, 2 hlutir 29cm ryðfrítt stál - Ikea 2450kr. 7. Cherry Lip Liner - MAC 4990kr. 8. Garnera tveggja hæða bakki, hvítt - Ikea 2950kr. 9. Loréal Latex Effect - Hagkaup 979kr. 10. Maybelline master precise liquid liner - Hagkaup 1959kr. 11. Iittala Mariskál 15cm Fölbleik - Líf&List 8900kr. 12. Iittala Mariskál 15cm Frost - Líf&List 7900kr. 13. Diva Lipstick - MAC 4790kr
Þann 22.febrúar verða komin sex ár síðan ég missti móður mína aðeins 17ára. Tíminn er svo fáránlega fljótur að líða! Sakna hennar alveg gífurlega, hláturinn hennar, filipínska matinn (sem ég kann því miður ekki að elda), jákvæðnina hennar og bara að geta faðmað hana. Hugsa til elsku mömmu daglega.
-hannaleam.



