Yfir hátíðarnar fluttum við hjónin nánast heim til tengdó þannig ég hef ekki verið með aðgang að netinu sem útskýrir bloggleysið. Jólin og áramótin hafa verið yndisleg, gæti ekki verið sáttari.
Loksins er ég komin aftur með snjallsíma þannig ég er orðin virk á snapchat og instagram, megið endilega adda mér ef þið hafið áhuga.
Snapchat: hannaleam / Instagram: hannaleam.
Er orðin svo leið á þessum endalausum veikindum, hósta eins og enginn sé morgundagurinn og er alltaf með nokkrar kommur. Það er mismunandi eftir hverjm og einum hversu mikinn hita þú þarft að vera með til að finna fyrir því. Ég td. er með nokkrar kommur en finn fyrir miklum hita í andliti, samt kalt, er utan við mig og slöpp. Æðiiislegt! Hringdi uppá heilsugæslustöð til að panta símatíma hjá lækninum mínum og hlakka til að heyra hvað kom út úr blóðprufunni, vonandi fæ ég einhver svör. Ég hélt að ég yrði aldrei veik aftur eða svona semi eftir hálskirtlatökuna sem ég fór í 2013 og horrornum sem fylgdi eftir aðgerðina.
Ég tók mér ekki áramótaheit og hef ekki gert í nokkur ár, það er bara ávísun um vonbrigði haha. En vona að öllum öðrum sem tóku sér heit gangi vel.
Í augnablikinu er ég að taka til í tölvunni minni, semsagt taka allar bíómyndir og þætti og færa þá yfir á flakkara svo ég geti náð í ennþá meira efni. Er loksins í fríi á morgun þannig þá verður íbúðin tekin í gegn, elska þegar það er nýbúið að taka til. Líðanin er miklu betri í hreinu og fínu umhverfi.
-hannaleam.

No comments:
Post a Comment