Fyrir nokkrum árum síðan uppgvötvaði ég Tomorrowland á youtube. Tomorrowland er tónlistarhátið sem er haldin í borginni "Boom" í Belgíu. Hún var fyrst haldin árið 2005 og í sumar var hún haldin í 10skipti þar sem meira en 400þúsund manns mættu og dönsuðu sig máttlaus. Síðustu 9ár hefur hátíðin verið haldin yfir eina helgi en í ár var hún haldin yfir tvær helgar til að komast til móts við þennan heljarinnar fjölda af fólki. Stjórnendur hátíðarinnar vildu einnig bæta við annarri helgi til að gefa fleiri aðdáendum tækifæri á að komast á hátíðina. Í ár voru 360000miðar í boði en þeir seldust upp á innan við klukktíma!
Tónlistin sem spiluð er á hátíðinni einkennist af EDM aka Electronic dance music og eru það flestir af frægustu Dj'um heims sem mæta og trylla liðið. Meðal þeirra eru Kaskade, Alesso, Armin Van Buuren, Eric Prydz, Tiesto, Skrillex, Nicky Romero, Afrojack, Avicii, Martin Garrix og David Guetta.

Eftir hverja hátíð er búin til "Tomorrowland AfterMovie" sem við hin sem erum föst heima bíðum alltaf spennt eftir. Myndin fór hinsvegar eitthvað framhjá mér núna því það er mánuður síðan hún kom á youtube en hún er æææði! Fæ þvílíkan hroll, njótið! <3
Hérna eru svo playlistar yfir lögum sem voru vinsæl í ár
-hannaleam.