Showing posts with label daglegtlíf. Show all posts
Showing posts with label daglegtlíf. Show all posts

Wednesday, December 17, 2014

7dagar í jólin!

Tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða! Núna eru bara 7 dagar í jólin og vá hvað það er notalegt að vera löngu búin að öllu. Varð veik aftur síðasta sunnudag, vaknaði hress og kát og var svo komin með hita um kvöldið, yndislegt. Er búin að liggja orkulaus heima hjá mér að horfa á bíómynd eftir bíómynd. Mæli með nokkrum sem ég horfði á: "Edge of Tomorrow", "Horns" og "Hachiko: A Dog's Tale", grét þvílíkt yfir síðustu myndinni. Á tíma hjá lækni á morgun og vonandi getur hann gefið mér einhverjar útskýringar á þessum veikindum, ekki eðlilegt að fá hita 1 til 2 í mánuði.

Edge of Tomorrow, Horns og Haciko: A Dog's Tale.

 Á morgun á ég líka tíma í... klippingu! Vúhú, er sko búin að bíða spennt! Meira en helmingurinn af hárinu mínu fær að fjúka og það verður svo mikið frelsi. Get samt alveg garanterað það að ég mun væla yfir því eftir svona viku, en það er í lagi. Held ég muni gera þetta framvegis, safna í 4 ár og klippa svo allt af og byrja svo aftur að safna oog klippa allt af, you get it. Reyni að skella inn mynd umleið og ég get.


Komst loksins aðeins út úr húsi í dag (enda búin að vera föst inni síðan á sunnudaginn) og er þessi snjór eitthvað grín? Fæ alltaf lagið "Winter Wonderland" úr Happy Feet á heilann þegar ég sé allan þennan snjó. Aðstoðaði vinkonu mína við jólainnkaup og kíktum svo við í Korpu Outlet, þar fann ég sundbol á 2500kr frá Arena. Heavý sátt enda búin að leita mér að sundbol lengi. Það voru einnig sundbolir frá Speedo frá ca.5000kr. mæli með að kíkja þangað ef ykkur vantar sundbol, einnig hellingur af fötum úr td. Zöru og Vero Moda á klink.


Hef gaman af því þegar fólk hrósar blogginu mínu og hafi gaman að því lesa pistlana mína, en hef einnig fengið þessa setningu "Hvaaaað ætlaru að blogga um þetta eða? Haha". Alltaf jafn fyndið þegar fólk finnist eitthvað asnalegt sem maður er að gera bara afþví það er öðruvísi en geta svo ekki þagað um það, verða bara að dissa örlítið. Nátla sorglegt að sumir fái virkilega eitthvað út úr því að dissa aðra. "If you dont have anything nice to say, then dont say anything at all." Samt ekki misskilja mig, tók þetta ekkert inná mig en eins og ég hef sagt áður þá er rosalega þægilegt að blogga, ég get sagt það sem ég vil og fólk ræður því algjörlega hvort það vill lesa skrifin mín eða ekki.



En hvað með það, jólin nálgast :)


-hannaleam.




Friday, December 5, 2014

❄❄❄

Var vakin klukkan fjögur í morgun af litlum vælupúka. Depill vældi og vældi og vældi. Stóð upp pirruð og henti honum út og reyndi svo að sofna aftur. 10mín seinna var hann vælandi fyrir utan og klórandi í kattalúguna sína. Stóð þá upp aftur og hleypti honum inn, held að lúgan hafi verið frosin. Eftir þetta gat ég sofnað og tók upp bókina sem ég er að lesa, "Ég man þig" eftir hana Yrsu. Er búin með svona 1/4 af bókinni og hún er byrjuð að vera drungaleg, rosalega er ég fegin að hafa Sigvalda sofandi við hliðin á mér því ég held ég myndi ekki meika að lesa hana ein. Ágætt að vakna svona snemma því ég er hvort sem er að fara að mæta á næturvakt í kvöld, þannig ég verð orðin þreytt og get farið snemma að sofa fyrir vaktina.


Það er 5.desember í dag, 19dagar í jólin. Tíminn er svo fljótur að líða og rosalega er ég fegin að vera ekki í prófum á þessum tíma. Um daginn fór ég og sá "The Hunger Games - Mockingjay Part 1" og vávává hvað ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég græt mjög auðveldlega yfir myndum og þegar *spoiler alert* Katniss fer með hópnum að skoða spítalann þá grét ég, svo sorglegt atriði! Elska myndir sem hafa actually áhrif á líðan manns, dett algjörlega inn í myndina og finn svo til með karkaterunum. Núna þarf ég að bíða í heilt ár í viðbót eftir næstu og síðustu myndinni. Mæli samt með því að fólk lesi bækurnar ef það hefur ekki séð myndirnar. Vanalega nenni ég sjálf ekki að lesa bækurnar ef ég er búin að sjá myndina. Ein bók sem ég man eftir að hafa lesið þótt ég hafi séð myndina er "The Time Traveler's Wife", varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum enda mikill aðdáendi myndarinnar.





Hvað segiði um annan óskalista? Haha vona að þið séuð ekki komin með leið á því. Getið nýtt ykkur þetta sem jólagjafahugmyndir...


1. Garnera tveggja hæða bakki. Hvítt - Ikea 3950kr. 2. Faunscape Wolf - Esja Dekor 12990kr. 3. Kertastjaki POV vegg/svartur - Epal 6500kr. 4. Loðhúfa - F&F 1790kr. 5. Skjalm P kopar kúlur - Snúran.is 3600kr. 6. Bob Noon Me and my queen  - Snúran.is 19900kr. 7. Blússa - Lindex 3995kr. 8. Glacier Peysa - F&F 5990kr. 9. Vikampa l/s dress - VILA 9990kr. 10. Viraun strap top - VILA 4990kr. 11. Raven necklace - Aurum 29341kr. 12. Raven earrings - Aurum 15374kr. 13. Diva - MAC 4790kr. 14. Elephant Take Away - INDISKA 1795kr.


-hannaleam.





Friday, November 7, 2014

Rósa frænka

Hresstist við það að mæta á morgunvakt í dag eftir 4 daga veikindi. Ég held að þetta hafi tengst blæðingunum mínum. Síðustu 2 skipti plús núna hef ég fengið hita þegar Rósa frænka kemur í heimsókn. Rosalega furðulegt! Hef prófað að googla það en það eru margar stelpur sem hafa lent í þessu en það eru einnig margar ástæður fyrir því. Skipti nýverið úr Microgyn sem ég hafði verið á í 7ár yfir í Mercilon sem er með minnstu hormónunum. Vinkonur mínar höfðu sagt mér að það væri óhollt að vera svona lengi á sömu pillunni en heimilislæknirinn sagði að það væri bull. Ákvað samt að skipta yfir í Mercilon. Er búin að vera á henni í 3mánuði núna. Hef upplifað hita, meiri túrverki og eymsli í brjóstum. Æðislegt að vera kvenamaður! Endilega látið mig vita ef þið kannist eitthvað við þetta. Sumum finnst kanski óviðeigandi að ég sé að blogga um eitthvað svona persónulegt en við stelpur förum allar á túr og þetta ætti ekki að vera eitthvað feimnismál.



Í kvöld er ég að fara niður í bæ og borða með Jóhönnu vinkonu minni. Er með smá surprise fyrir hana, alltaf gaman að gleðja  <3 Mæli með að þið kíkið á English Pub! Á slaginu 20:59 er frír Tuborg Jólabjór í eina mínútu!



Sjáumst í jólaskapinu,

-hannaleam.


Tuesday, October 28, 2014

Góðan daginn!

Sæl veriði! Mín vaknaði við heljarinnar læti í morgun þar sem nágranninn var að "brjóta sér leið inn til mín", hljómaði í minnsta kosti þannig. Varð verulega pirruð! Ég sem ætlaði að sofa út... Vann næturvakt á sunnudaginn og í gær þurfti ég að vakna klukkan 12:00 til að mæta á Fagnámskeið 1, þannig ég var búin að sofa í 3 og hálfan tíma. Í dag er ég aftur að fara mæta á fagnámskeiðið sem hefst kl:13:30 svo fer ég beint á kvöldvakt og er að vinna til hálf12. Lífið er yndisleeeeegt..

Fagnámskeið 1 hófst 6.ókt og lýkur 26.nóv. Þrisvar í viku frá 13:30 til 16:30. Efling borgar námskeiðið fyrir mig, ég fæ laun á meðan ég er á námskeiðinu og ég hækka um launflokk. Græði bara á þessu. Eftir áramót er svo hægt að fara í Fagnámskeið 2 og hækka aftur um launaflokk. Auðvitað fer ég líka í það. Svo get ég farið í tveggja ára nám í FB til að klára sjúkraliðann og er að spá í því.

Hérna eru ljúfir þriðjudags tónar.


--------------------------------------------------------------------------------------
Um daginn ákvað ég að prófa að lesa Ísfólkið og ég kolfékk fyrir þessum bókum. Hef virkilega gaman af því að lesa um ævintýri og gamla tíma. Það kom mér rosalega á óvart að ég náði að sökkva ofan í þetta þar sem ég les vanalega bækur á ensku. Hef reynt að lesa bækur á íslensku en ég missi fljótt áhugann. Er ekki alveg viss hvað það er.. gæti verið að það sé afþví að móðir mín lét mig alltaf lesa fyrir hana á ensku á kvöldin þegar ég var barn. Er alveg að fara klára fjórðu bókina en þá held ég að lestrartímabilið mitt sé búið. Lestrartímabilið mitt er tímabilið sem ég les og les og les þangað til ég missi áhugan um óákveðin tíma. Bíð bara þangað til að áhuginn komi aftur.


 En nú þarf ég að drulla mér á fætur og skella mér í sturtu fyrir námskeiðið. 

-hannaleam.

Fyrsta bókin

Monday, October 27, 2014

Einu sinni var...

Ég átti eitt sinn blogg og ég naut þess að blogga. Ég blogga aðallega fyrir mig og það er algjör plús ef fólk hefur gaman af því að lesa bloggin mín. Það skemmtilegasta sem mér finnst við það að eiga blogg er að líta tilbaka og lesa minningar sem ég er alveg búin að gleyma. Ég átti blogcentral síðu enn það kerfi hætti að virka, mikið fannst mér það ömurlegt. Ég ætla aðallega að blogga um mitt daglega líf, pælingar, meðmæli og beauty tips.

Njótið, xoxo.

-hannaleam.