Eins og ég greindi frá í síðasta bloggi fór ég og hitti Jóhönnu vinkonu mína niðrí bæ í gær. Fengum okkur kvöldmat (Fiskisúpa Jörundar -æðislega góð!), kíktum síðan yfir á English Pub og fengum okkur frían Tuborg jólabjór. Því miður fór skrúðgangan alveg framhjá mér en ætla klárlega að mæta í hana á næsta ári! Það var hellingur af liði með Tuborg jólahúfur, bindi, eyrnaskjól og aðra aukahluti fyrir utan pöbbinn. Ég dauðöfundaði þau, vá hvað mig langaði í svona fallega bláa jólahúfu! Kíkti á barinn og spurði og hvort þau ættu nokkuð einhverjar jólahúfur eftir en því miður voru þær búnar. Nöldraði svoleiðis yfir því hvað mig langaði í húfu og var að lokum búin að gefast upp. Hún Jóhanna mín reyndi að hughreysta mig og sagði mér að hugsa bara "Mig langar í svona húfu, ég mun eignast svona húfu" eða eitthvað í þá áttina. Stay positive, you know. Allavega, kíktum svo út, ætluðum að fá okkur ferskt loft og kíkja svo eitthvert annað. Það labbar upp að mér náungi og spyr um eld þannig ég prófa að spyrja hann hvort hann eigi þá nokkuð auka jólahúfu? NEI SKO hann réttir mér húfuna sína og segir að ég megi eiga hana. Vá hvað hann veit ekki hvað hann gerði mig hamingjusama! (Þarf lítið til að gera mig glaða). Þá loksins gat ég tekið þátt í söngnum með bros á vör "♫ Jólabjór, jólabjór, trallallallaaaaa ♪". Þetta var hápunktur kvöldsins, ég fékk jólahúfu! Gleðifrétt helgarinnar, klárlega! Fórum svo yfir á Hressó þar sem við hittum mikið af skemmtilegu fólki og fólk sem var ekki eins skemmtilegt, en því var bara "shúað" burt. Tel mig vera frekar góða í því.
Yndislegt kvöld í alla staði <3
-hannaleam.
