Í gær áttum ég og Sigvaldi eins árs brúðkaupsafmæli. Við gerðum í rauninni ekkert sérstakt, elduðum kvöldmat saman (pasta með grænmeti, túnfisk, soðnum eggjum og hvítlauksbrauð mmmm) og horfðum á bíómyndina "John Wick" sem mér fannst drullu góð! Svona ekta hasar með gæja sem leitar af hefndum (algjör hasar fan). Náði líka inná FM957 og náði mér í 2bíómiða á myndina "The Wedding Ringer" með Kaley Cuoco (úr Big Bang Theory) & Kevin Hart (td. Ride Along), hlakka til að sjá hana með Sigvalda, ætla að passa mig að horfa ekki á trailerinn þar sem það skemmir eiginlega alltaf fyrir manni ef það er grínmynd.
Veikindin mín eru alveg eins. Er alltaf með 37,5 stiga hita og stundum fer hann uppí 38. Þessi hiti gerir mig alltaf svo þreytta.. Var í blóðprufu í gærmorgun og hitti lækninn á föstudaginn, vonandi fær hann eitthvað út úr þessum blóðprufum.
-hannaleam.
