Showing posts with label veikindi. greysanatomy. Show all posts
Showing posts with label veikindi. greysanatomy. Show all posts

Wednesday, November 5, 2014

Veikindi

Í dag er ég búin að vera veik í 3daga og ég vona að veikindunum séu að ljúka sérstaklega þar sem ég á að mæta á kvöldvakt á morgun. Á mánudaginn var ég á morgunvakt til 13:00, námskeiði til 16:30, fór svo heim og lagði mig fyrir næturvakt klukkan 19:00. Vaknaði klukkan 22:30 með hita og beinverki. Leið ömurlega en þurfti að mæta á næturvaktina því það var of lítill fyrirvari að hringja mig inn veika og fara kalla út annan starfsmann. Það er alveg hörmulegt að halda sér vakandi með hita þegar það eina sem manni langar til að gera þegar maður er veikur er að sofa. Um morguninn lét ég vita að ég treysti mér ekki til þess að mæta næstu nótt og er búin að vera heima veik síðan. Vonandi er þetta síðasta skiptið fyrir jól!

--------------------------------------------------------------------------------------

Fyrir sirka 2 mánuðum byrjaði ég að horfa á Greys Anatomy. Er komin á 3seríuna núna og nýt þess að vera horfa á þetta í fyrsta skipti, hef líka eitthvað að gera á meðan þessi veikindi ganga yfir. Vá hvað þessir þættir eru spennandi!!



Hérna eru nokkur góð ráð til að losa sig við veikindin sem fyrst.
  • Borðaðu kíví. Kívi inniheldur meira C vítamín heldur en appelsínur og C vítamín er nauðsynlegt    fyrir ónæmiskerfið. Þau innihalda einnig B vítamín sem er nauðsynlegt fyrir rauðu blóðkornin
  • Borðaðu hvítlauk. Hvítlaukur inniheldur náttúrleg bakterídrepandi og veirueyðandi eiginleika sem kemur í veg fyrir kvef og flensu. Best er að setja mikið af ferskum hvítlauk í matinn en ef þér líkar ekki við bragðið geturu tekið hylki sem innihalda hvítlauk. Hvítlaukur getur einnig hjálpað til með að brjóta niður slím þannig það er mjög gott að skera hann niður, setja í heitt vatn og anda að sér gufunni.
  • Drekktu vatn með hunangi og sítrónu. Hunang hefur bakteríudrepandi og róandi eiginleika. Eitt glas af heitu vatni með teskeið af hunangi og sítrónu hjálpar þér að sofa.
  • Borðaðu engifer. Engifer hjálpar til við að örva blóðrásina og stuðlar að svitamyndun, sem hjálpar líkamanum að losa sig við eiturefni. Hár líkamshiti hjálpar til við að drepa gerla og gefur ónæmiskerfinu tækifæri til að berjast við veikindin.
Svo er bara að drekka eins mikið af vatni og maður getur og sofa nóg.


 
 

Vona að ég verði orðin góð fyrir morgundaginn,

-hannaleam.