1.Taka hárkúr:
L-Systín og DL-Metíónín eru amínósýrur sem innihalda brennistein, en hann er einkar mikilvægur fyrir hárið. Lesitín, inósítól og kólín eru nauðsynleg efni fyrir heilbrigðan hárvöxt. Skortur getur leitt til hárloss. B-vítamínin, PABA, bíótín og fólínsýra eru hárinu nauðsynleg. Ýmislegt eyðir þessum vítamínum úr líkamanum eða kemur í veg fyrir fulla virkni þeirra. Má þar nefna reykingar, feitan mat, áfengi, sum lyf og streitu og ofneyslu á hvítum sykri, svo að nokkuð sé upp talið. Þörf er á járni til myndunar blóðrauða sem flytur súrefni til allra fruma líkamans, því er það nauðsynlegt fyrir heilbrigðan hárvöxt. Kelp er þari sem inniheldur steinefni og hefur lengi verið notaður fyrir hárið. Auk þess eru sink og önnur steinefni í Hárkúr hylkjunum, en skortur getur valdið því að hárið verði slitið og líflaust eða öðrum truflunum á eðlilegum hárvexti.
2.Nota djúpnæringu td. frá Redken. Keypti mína dollu fyrir ca3 árum á 6þúsund og hún er ekki ennþá búin! Reyni að nota hana 1-2 í viku. Það má sofa með efnið í hárinu. Ég bleyti endana, tek smá efni og nudda í, svo flétti ég í tvær fléttur og fer að sofa. Daginn eftir skola ég djúpnæringuna úr.
3.Skola hárið með köldu vatni, allsekki brennandi heitu því það þurrkar það. Einnig að reyna að þvo það ekki á hverjum degi annars eyðileggur maður eðlilega sýrustigið í hársvörðinum. Að þvo hárið á hverjum degi er ástæðan fyrir því að hársvörðurinn verður fitugur svona fljótt. Gott er að venja sig á það að þvo hárið MAX 3 í viku og skola það með köldu vatni.
Þetta var í rauninni það eina sem ég gerði þegar ég var að safna hári og voila, allt í einu var ég komin með helling af hári! En núna er ég 90% búin að ákveða að klippa mig stutthærða. Spurningin er bara hvort ég eigi að gera það fyrir jól eða eftir áramót.
-hannaleam.



No comments:
Post a Comment