Showing posts with label gærkvöldið. Show all posts
Showing posts with label gærkvöldið. Show all posts

Sunday, November 2, 2014

Gærkvöldið

Það var djammað og djúsað í gærkvöldi með nokkrum vel völdum skvísum. Arney vinkona mín hélt uppá tvítugs afmælið sitt á Park og það var einnig hrekkjavökuþema. Það var gjörsamlega troðið í bænum og vááá ég hef ekki lent í öðru eins veðri í miðbænum! Það var heljarinnar hvassviðri enda átti ég í þvílíku basli með að greiða á mér hárið í morgun. Endaði með því að ég þurfti að fara í sturtu, maka djúpnæringu í hárið á mér og greiða flækjurnar úr. En er ánægð með gærkvöldið og takk fyrir mig stelpur <3

Nú ætla ég að kúra uppí sófanum með kallinum og horfa á sjúklega spennandi seríu sem við vorum að byrja á, The Blacklist. Mæli með að spennufíklar tjékki á þessu.

Hérna eru nokkrar síðan í gær, náði því miður ekki mynd af öllu outfittinu en átti semsagt að vera álfkona.

Berglind, ég og Móeiður.




Keypti hárbandið í kolaportinu á 100kr, WIN!




-hannaleam.