Showing posts with label jólagjafir. Show all posts
Showing posts with label jólagjafir. Show all posts

Sunday, December 28, 2014

Jólin 2014

Jólin í ár voru yndisleg, er svo þakklát og ánægð með gjafirnar sem ég fékk. Svo sýnist mér flestir ánægðir með gjafirnar sem ég gaf. Ég fékk m.a. rúmföt, naglalökk, eldfastmót frá Rosendahl, skálar frá Rosendahl, 5000kr gjafabréf í kringluna, hitakrús, Mac varalit - Amorous, kjól úr H&M, tekönnu með síu, trefil, bolakjól úr H&M og margt fleira fallegt.



Á aðfangadag var þriggja rétta dinner.
Humarsúpa í forrétt, lambahryggur í aðalrétt
og sítrónu frómas með rjóma í desert, mmmm!


Á aðfangadag ætluðum við hjúin að skjótast út í búð en þá kom í ljós að bílinn vildi ekki fara í gang, eða jú hann fór í gang en drap svo strax á sér aftur. Yndislegt alveg hreint! Jólin og svo helgi þannig ég get fyrst byrjað að hringja á verkstæði í fyrramálið.

Okkur var boðið í matarboð á jóladag hjá yndislegri vinkonu og afþví bílinn var bilaður sótti hún okkur og skutlaði okkur svo heim um kvöldið. Hjá henni fengum við síld með rúgbrauði, hangikjöt og ris ala mande. Þetta var í fyrsta skipti held ég sem ég tek þátt í svona "ris ala mande leik" og ég vann! Fékk möndluna og flottan vinning. Eftir matinn var kveikt í eldstæðinu og spilað alias, æðislegur dagur með góðu fólki.

Var að klára bókina Dance, dance, dance eftir Haruki Murakami. "High-class call girls billed to Mastercard. A psychic 13-year-old dropout with a passion for Talking Heads. A hunky matinee idol doomed to play dentists and teachers. A one-armed beach-combing poet, an uptight hotel clerk and one very bemused narrator caught in the web of advanced capitalist mayhem. Combine this offbeat cast of characters with Murakami's idiosyncratic prose and out comes Dance Dance Dance." Er staðráðin í því að lesa allt eftir þennan mann, snillingur. Allar bækurnar sem ég hef lesið so far eru svo súrrealískar og hann býr til svo fallega heima en einnig drungalega. Bækurnar hans fá mann til að hugsa og sitja virkilega eftir.



Hlakka svo til áramótanna, horfa á fréttaannállinn 2014, áramótaskaupið og skála með yndislegu fólki.


-hannaleam.




Friday, December 5, 2014

❄❄❄

Var vakin klukkan fjögur í morgun af litlum vælupúka. Depill vældi og vældi og vældi. Stóð upp pirruð og henti honum út og reyndi svo að sofna aftur. 10mín seinna var hann vælandi fyrir utan og klórandi í kattalúguna sína. Stóð þá upp aftur og hleypti honum inn, held að lúgan hafi verið frosin. Eftir þetta gat ég sofnað og tók upp bókina sem ég er að lesa, "Ég man þig" eftir hana Yrsu. Er búin með svona 1/4 af bókinni og hún er byrjuð að vera drungaleg, rosalega er ég fegin að hafa Sigvalda sofandi við hliðin á mér því ég held ég myndi ekki meika að lesa hana ein. Ágætt að vakna svona snemma því ég er hvort sem er að fara að mæta á næturvakt í kvöld, þannig ég verð orðin þreytt og get farið snemma að sofa fyrir vaktina.


Það er 5.desember í dag, 19dagar í jólin. Tíminn er svo fljótur að líða og rosalega er ég fegin að vera ekki í prófum á þessum tíma. Um daginn fór ég og sá "The Hunger Games - Mockingjay Part 1" og vávává hvað ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég græt mjög auðveldlega yfir myndum og þegar *spoiler alert* Katniss fer með hópnum að skoða spítalann þá grét ég, svo sorglegt atriði! Elska myndir sem hafa actually áhrif á líðan manns, dett algjörlega inn í myndina og finn svo til með karkaterunum. Núna þarf ég að bíða í heilt ár í viðbót eftir næstu og síðustu myndinni. Mæli samt með því að fólk lesi bækurnar ef það hefur ekki séð myndirnar. Vanalega nenni ég sjálf ekki að lesa bækurnar ef ég er búin að sjá myndina. Ein bók sem ég man eftir að hafa lesið þótt ég hafi séð myndina er "The Time Traveler's Wife", varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum enda mikill aðdáendi myndarinnar.





Hvað segiði um annan óskalista? Haha vona að þið séuð ekki komin með leið á því. Getið nýtt ykkur þetta sem jólagjafahugmyndir...


1. Garnera tveggja hæða bakki. Hvítt - Ikea 3950kr. 2. Faunscape Wolf - Esja Dekor 12990kr. 3. Kertastjaki POV vegg/svartur - Epal 6500kr. 4. Loðhúfa - F&F 1790kr. 5. Skjalm P kopar kúlur - Snúran.is 3600kr. 6. Bob Noon Me and my queen  - Snúran.is 19900kr. 7. Blússa - Lindex 3995kr. 8. Glacier Peysa - F&F 5990kr. 9. Vikampa l/s dress - VILA 9990kr. 10. Viraun strap top - VILA 4990kr. 11. Raven necklace - Aurum 29341kr. 12. Raven earrings - Aurum 15374kr. 13. Diva - MAC 4790kr. 14. Elephant Take Away - INDISKA 1795kr.


-hannaleam.





Tuesday, November 18, 2014

Jóla-Óskalisti

Ég var beðin um að henda í einn jóla-óskalista (engin sérstök röð) og auðvitað hlýði ég. Svo á ég líka afmæli í febrúar *blikkblikk*





1. Allegiant by Veronica Roth - Nexus 1999kr. 2. Múmínbolli Ást - LífogList 3580kr. 3. Múmínbolli Snorkstelpan - LífogList 3589kr. 4. Krummi svartur (m.löngum stálvír) - Kraum.is 5900kr. 5. Groggy bakki 38cm ryðfrítt stál - Ikea 1550kr. 6.  Vínrautt fléttuhárband (afsaka lélegu myndina) - "Hárbönd" á Facebook 1500kr. 7. Keep Cup (Stórt mál) - Te og Kaffi 2599kr. 8. Teegg Grátt - LífogList 2450kr. 9. Regnhlíf. 10. For life Stump teketill - Kaffitár 5150kr. 11. Real Techniques Base Shadow Brush - Hagkaup ca.2000kr? 12. Skurar kertastjak 11cm hvítt - Ikea 390kr. 13. L'Oréal CC Cream Anti Redness - Hagkaup ca3000kr? 14. Rosendahl GC 2stk Hvítvín Bordeaux - LífogList 3680kr. 15. Pernilla lysgraÅ - ILVA 4900kr. 16. Real Techniques Base Shadow Brush - Hagkaup ca.2000kr?

----------------------------------------------------------------------------------------

Annars er þessi vika rosalega erfið fyrir mig, margt í gangi og stór tímamót. Ég vona bara að ég lifi fram í næstu viku. Óþægilegt að geta ekki farið út úr húsi án þess að hafa áhyggjur af íbúðinni sinni, koma kanski heim og það er búið að brjóta og bramla eða brenna allt niður. Æðislegt að lifa við þessa ógn, er gangandi stressbolti. Mig hlakkar svo til... 2016? Þá verður þetta allt saman vonandi búið. Held ég meiki ekki meir af þessu rugli..


-hannaleam.

Tuesday, November 11, 2014

JólaJóla

Núna eru einungis 43 dagar í jólin og mig hlakkar svo til! Klæjar í puttana, mig langar svo að byrja að skreyta. Er búin að kaupa nánast allar jólagjafirnar og vá hvað það er næs að vera í engu stressi. Nú get ég haft það kósý í desember, föndrað og pakkað inn jólagjöfum við góða jólatónlist. Hef aldrei verið jafn mikið jólabarn og núna. Hef alltaf viljað byrja á jólatónlistinni í fyrsta lagi 1.des en í ár er ég alveg rosalega spennt. Held líka að málið sé það að þetta er í fyrsta sinn sem ég held uppá jólin í minni eigin íbúð. Ég er ein af þeim sem hlustar vel á vinkonur mínar allt árið og ef þær nefna einhvað sérstakt sem þeim langar í reyni ég að leggja það vel á minnið fyrir jólin. Það er vanalega ekkert mál fyrir mig að kaupa jólagjafir handa ástvinum mínum og finnst það bara ánægjulegt.  



Ætla að deila með ykkur nokkur ráðum: 

Nr. 1 - 2 og 3 er að vera vel skipulögð í kringum jólin. Best er að klára gjafirnar sem fyrst svo maður hafi nú tíma til að njóta hátíðarinnar. Einnig er gott að fylgjast með öllum tilboðum, þannig er hægt að kaupa td. eitthvað sem vinkonu manns langaði svo í, á góðu verði. Gjafabréf er skotheld gjöf, það getur td. verið gjafabréf í nudd, í kringluna, út að borða eða í leikhús. Einnig er sniðugt að gefa ostakörfur og eða vín fyrir þá sem að eiga allt. Endilega munið líka eftir því að biðja um skilamiða á gjafirnar. Ef þið hafið ekki mikið á milli handana finnst mér alltaf jafn flott að gefa mynd í ramma, td. af ykkur saman. Svo er einnig hægt að skrifa eitthvað orðatiltæki, inspo, quote eða jafnvel teikna mynd og setja í rammann.

Það er oft sem pökkunarborðið í kringlunni er troðið, finnst óþægilegt að pakka inn í svona miklu áreiti. Mæli með því að taka bara gjafapappírinn og böndin með þér heim, þar geturu pakkað í friði með nóg af plássi. Svo gæti ég haldð endalaust áfram en þetta er komið gott.

Vona að þetta minnki jólastressið ykkar.


-hannaleam.