Loksins er ég búin með næturvaktirnar þrjár sem ég vinn í hverjum mánuði, annars er ég samtals á sjö næturvöktum. Tvær, tvær og þrjár í einu. Ég las einhversstaðar rannsókn um áhrifin sem næturvaktir hafa á karlmenn og konur og í þeirri rannsókn kom í ljós að næturvaktir eru erfiðari fyrir konur. Nú man ég ekki alveg afhverju það var nema jú eitthvað afþví konur eru með meiri hormón í líkamanum. En annars er það nátla mismunandi eftir fólki, sumir geta unnið td. 3-5 næturvaktir í röð og finna ekki fyrir neinu, konur og karlar. Á netinu eru margar greinar um allskonar heilsu vandamál sem má rekja til þess að vinna næturvaktir. "Why You Shouldn’t Work at Night", "Can our bodies adapt to being night owls?
" & "Night shifts spark cancer pay-out". Ég veit samt ekki hvort það sé verið að tala um bara næturvaktir eða vaktavinnu almennt, dagur, kvöld og nótt.
Næturvaktir fyrir mig geta verið allt í lagi en líður oftast eins og uppvakningi eftir þær. Alveg sama hversu mikið ég sef er ég alltaf jafn þreytt td. reyni að vakna snemma um morguninn (næturvakt byrjar kl hálf12) reyni svo að gera eitthvað yfir daginn svo ég verði þreytt um 16:00 leytið. Reyni að fara sofa á milli 17:00-19:00. Stundum sef ég bara í klukkutíma og ef ég er heppin sef ég í þrjá tíma. Fer á næturvaktina hálf 12 og vinn til 08:00, kem heim og sef oftast til svona 14:00, fer þá á fætur og reyni svo að sofa aftur í þrjá tíma um kvöldið. Og þótt að ég reyni að sofa og sofa eins og ég get er ég dauðþreytt! Ótrúlegt. Fæ líka hausverki og þarf stundum að taka verkjalyf því þeir eru það miklir. Einnig er stórhættulegt að keyra heim eftir vaktirnar, fyrir mig er þetta svona "Úps.. er komin uppí 100km" eða "Kaaantur!" haha þið skiljið.
Svo er ég nátla búin að vera að díla við veikindi síðan fyrir jól og það hjálpar ekkert í vaktavinnu, enda er ekkert mál að vinna vaktavinnu þegar maður er með 100% orku en ég hef verið í 80-90% undanfarið.
Vonandi þarf ég ekki að vinna næturvaktir í mörg ár til viðbótar.
-hannaleam.

