Kom heim í morgun, dauðfegin að vera loksins búin með þessar þrjár næturvaktir. Sofnaði ekki fyrr en kl11 og vaknaði kl17, ekkert smá kósý að hanga inni þegar það er svona veður úti. Langar að baka..
Er alveg ógurlega spennt yfir því að fara í klippingu og klippa mig stutthærða, held ég fari í smá spennufall eftirá haha. Steingleymdi að segja frá því í síðasta bloggi að klippingin sem mig langar í kallast "The Lob" aka Long Bob. The Lob er semsagt aðeins síðari en þessi venjulegi bob. Er búin að vera að liggja yfir myndum og mynböndum og verð bara meira og meira ástfangin! Elska að gera eitthvað nýtt við hárið á mér. Þetta er eitt af því fáa sem maður getur gert hvað sem er við og það vex aftur!
Ég mæli með The Beauty Department! Kíki reglulega inná síðuna og fæ allskonar hugmyndir varðandi hár, tísku og snyrtivörur. (Ákvað td. að klippa mig þegar ég las greinina um Lob, ást við fyrstu sýn!)
Fór á bókasafnið á laugardaginn, elska að fara á bókasafnið og hanga þar í marga klukkutíma. Fékk að láni þrjár aðrar bækur eftir Haruki Murakami, er alveg hugfangin af bókunum hans. Markmiðið er að lesa allt sem hann hefur skrifað. Er mjög gjörn á að gera þetta, sérstaklega með leikara. Ef ég er mjög hrifin af ákveðnum leikara langar mig til þess að sjá allar myndirnar með honum eða henni. Síðast var það td. Juno Temple, hún er æðisleg.
-hannaleam.