Showing posts with label 2015. Show all posts
Showing posts with label 2015. Show all posts

Sunday, February 22, 2015

Hef samt ekkert stækkað..

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá undanfarið að ég hef því miður ekki haft tíma til að blogga. Er búin að vera svo upptekin að undirbúa afmælið mitt og núna síðasta föstudag rann dagurinn loksins upp. Ég á hins vegar afmæli 18.febrúar, eða á öskudaginn núna síðasta. Eyddi deginum i góðum félagsskap og þreif alla íbúðina hátt&látt, mega kósý. En afmælispartýið heppnaðist svo hrikalega vel, ég og stelpurnar skemmtum okkur konunglega. Svo er líka skemmtilegast að djamma á föstudögum því þá er öll helgin ennþá eftir.


Ég bauð vinkonum mínum uppá heimagerðar kínarúllur (gerði í fyrsta skipti og voru fullkomnar) sem voru mjög vinsælar enda kláraðust þær allar! Ferska ávexti (ananas, kiwi og jarðaber), kasjú hnetur, ætlaði að vera með marengs köku en það misheppnaðist eitthvað. Í staðinn braut ég niður marengsinn, setti í skál með slatta af rjóma og berjum, redda sér! Gleymdi því miður að taka myndir þannig lýsingarnar verða að duga. Svo hafði ég skipulagt nokkra leiki sem ég held að hafi bara slegið í gegn, enda brostu allir útaf eyrum. Þegar maður býður fólki til sín í partý finnst mér það skipta miklu máli að halda utan um hópinn og passa að allir séu að skemmta sér, hafa einhvað skipulag á veisluhöldunum. Svo var dansað, spjallað og hlegið.Var stressuð yfir því að það yrði eitthvað vesen afþví við vorum 10 í pínkulitlu íbúðinni minni en það gekk vel.

Svo fékk ég líka svo fallegar gjafir! M.a. bleika ittala skál, svartan kjól með sverðlilju munstri, 4naglalökk, pukka te & laust berja te, varalit&augnskugga, rauða rós & lítinn smirnoff vodka, glös úr ikea, eyrnalokka, ilmvatnsprufur, handmálaða mynd af kisu (partýkisi), OLUNDA fiðrilda myndina úr ikea, sítrónu handburð frá Crabtree & Evelyn o.s.frv. Er svo ánægð með allt!

Takk, takk, takk æðislega fyrir mig stelpur þetta var frábært kvöld! Er svo heppin þekkja svona æðislegar stelpur.



Daginn eftir afmælið bauð Ásta mér á íshokkí leik, Esja vs. Björninn. Esja vann! Vúhú!! (Veit samt ekkert um íshókkí haha).

Lipstick: Gosh - Boheme.

-hannaleam.




Monday, January 5, 2015

Gleðilegt nýtt ár!

Yfir hátíðarnar fluttum við hjónin nánast heim til tengdó þannig ég hef ekki verið með aðgang að netinu sem útskýrir bloggleysið. Jólin og áramótin hafa verið yndisleg, gæti ekki verið sáttari.


Loksins er ég komin aftur með snjallsíma þannig ég er orðin virk á snapchat og instagram, megið endilega adda mér ef þið hafið áhuga.
Snapchat: hannaleam / Instagram: hannaleam.


Er orðin svo leið á þessum endalausum veikindum, hósta eins og enginn sé morgundagurinn og er alltaf með nokkrar kommur. Það er mismunandi eftir hverjm og einum hversu mikinn hita þú þarft að vera með til að finna fyrir því. Ég td. er með nokkrar kommur en finn fyrir miklum hita í andliti, samt kalt, er utan við mig og slöpp. Æðiiislegt! Hringdi uppá heilsugæslustöð til að panta símatíma hjá lækninum mínum og hlakka til að heyra hvað kom út úr blóðprufunni, vonandi fæ ég einhver svör.  Ég hélt að ég yrði aldrei veik aftur eða svona semi eftir hálskirtlatökuna sem ég fór í 2013 og horrornum sem fylgdi eftir aðgerðina.

Ég tók mér ekki áramótaheit og hef ekki gert í nokkur ár, það er bara ávísun um vonbrigði haha. En vona að öllum öðrum sem tóku sér heit gangi vel.

Í augnablikinu er ég að taka til í tölvunni minni, semsagt taka allar bíómyndir og þætti og færa þá yfir á flakkara svo ég geti náð í ennþá meira efni. Er loksins í fríi á morgun þannig þá verður íbúðin tekin í gegn, elska þegar það er nýbúið að taka til. Líðanin er miklu betri í hreinu og fínu umhverfi.



-hannaleam.