Showing posts with label næturvakt. Show all posts
Showing posts with label næturvakt. Show all posts

Saturday, May 23, 2015

Langt síðan síðast

Eins og ég hef minnst á áður er bloggið mitt einskonar afþreying. Hef verið með smá bömmer yfir því að vera ekkert að blogga en svo hugsaði ég djók, ég er bara að gera þetta fyrir mig og engan annan þannig „who gives a fudge“. Fyrir mér er það að blogga alveg eins afþreying og að lesa, horfa á bíómynd eða lakka neglurnar.


Í þessu augnabliki (05:27) er ég á næturvakt (1/3), var að horfa á „To Write Love on her Arms“ -2015 með Kat Dennings í aðalhlutverki. Myndin fjallar um unga stelpu með geðhvarfasýki sem byrjar í mikilli neyslu en ákveður svo að snúa sér á réttu brautina með aðstoð vina sinna. Endilega tjékkið á þessari, fannst hún allavega frábær og gæjarnir í myndinni ekki af verri endanum. Var ekki í stuði til að horfa á aðra mynd þannig ég ákvað bara að henda í eitt blogg og hlusta á „Night Visions“ með Imagine Dragons sem er ein af uppáhalds plötunum mínum. Það þarf ekki að skippa yfir neitt lag því öll lögin eru æði. Það sama má segja um plötuna hennar Lana Del Rey – „Born to Die“.

 

 
Var að koma úr langri lestrarpásu, stoppaði við á bókasafninu um daginn og tók að láni nokkrar bækur. „Fiend“  eftir Peter Stenson er án efa ein að bestu bókunum sem ég hef lesið! Klárlega frábær bók til að byrja á eftir lestrarpásu. (NO SPOILERS) Skáldsagan inniheldur snarklikkaða og veruleikafirrta dópista, endalausa neyslu og uppvakninga. Hahaha þessi bók er svo biluð! Allt morandi í glorhungruðum uppvakninum en það eina sem karakterarnir fókusera á er að viðhalda vímunni. Mæli klárlega með þessari, þegar þú byrjar geturu ekki lagt hana frá þér hún er svo spennandi.


 Það var yndislegt að fá sólina í gær, tók extravakt um morgunin en skellti mér svo í sólbað í sundi eftir vaktina. Ég fæ án gríns samviskubit ef ég er inni og það er fabjúlös veður úti, þannig ég frestaði heimilisþrifunum þangað til í dag. Það á víst að vera rigning alla helgina, yay Ísland. Vil samt minna ykkur á að nota sólarvörn þótt það sé skýjað því geislarnir eru til staðar þótt við sjáum þá ekki. Hrukkur eru helstu afleiðingar of mikillar sólar. Keypti mér ódýrt (800kr?) andlitskrem frá Garnier í Bónus um daginn. Kremið er með 20spf, góð fyrir þreytta húð og er „illuminating“ þannig maður fær svona fallegan ljóma yfir andlitið.
 


Afþví ég átti þessa umræðu við góða vinkonu mína og langaði til þess að deila henni: Smá pepp fyrir þær sem eru ósáttar með kílóin og finnast þær þurfa að vinna aðeins í sínum málum: Bara það að sleppa því td. að drekka ávaxtasafa (sykur er sykur þótt hann sé kallaður ávaxtasykur) eða orkudrykki er frábær byrjun. Bara það að sleppa eða minnka einhvað ákveðið er stórt skref í átt að betri lífstíl. Venja sig á nýja siði eins og td. að borða epli í millimál í stað þess að borða kex. Vona að ég sé að útskýra þetta nógu vel, semsagt pointið er að byrja á einhverju einu svo bætist alltaf eitthvað nýtt við, næstum ósjálfrátt. Ég er td. mjög löt við að hreyfa mig, fer stundum að synda eða út að ganga en ekki eins oft og ég ætti að gera. Þess vegna finnst mér auðveldara að hugsa um það sem ég læt ofan í mig, ég er samt engan veginn einhver heilsugúrú. Ég borða alveg allt sem mig langar virkilega í, en fæ mér þá bara minni skammta. Td. tvær pizzu sneiðar í staðinn fyrir þrjár og vatn, vatn, vatn í staðinn fyrir gos. Stundum kaupi ég mér einhvað skyndibitatilboð þar sem gos fylgir með og þá drekk ég það alveg, finnst það í lagi þar sem ég myndi td. aldrei setja kók í innkaupakerruna hjá mér. Kaupi mér aldrei gos nema stundum sítrónu Kristal svona einu sinni í mánuði eða sjaldnar. Nr. 1, 2 og 3 er að elska sjálfan sig! Ekki vera vond og refsa sjálfri þér með neikvæðni (brjóta sig niður) fyrir að hafa fengið þér súkkulaði stykki. Finnst langbest að vera á þessum stað, borða það sem ég vil og líða vel enda er það líðanin hjá manni sem skiptir öllu máli.

 
 
-hannaleam. 
11.maí

Tuesday, March 10, 2015

Nýt lífsins


Þegar þetta er skrifað er ég á næturvakt. Ákvað að nýta tímann sem ég hef á næturvaktinni til að henda í eitt blogg sem ég gæti þá sett inn á morgun, eða núna semsagt. Það er búið að vera hellingur að gera hjá mér (lífið, vinna, námskeið= repeat) þannig ég hef ekkert haft neinn tíma til að drepa í blogg, enda er það einskonar leið fyrir mig að dunda mér. En ég þyrfti að vera duglegri því það er svo gaman að líta tilbaka. Hmm hvað hef ég gert undanfarið sem er svona semi merkilegt að segja frá? Laugardaginn 28.febrúar (I know, svoldið síðan) skellti ég mér á Amabadama tónleikana sem voru haldnir í Stúdentakjallaranum. Tilefni tónleikana var að fagna að það væri byrjað að glitta í sólina. Svo var einnig verið að kynna nýjan drykk sem heitir Sólbert, ávaxtabjór með sítrónu eða brómberja bragði. Mjög bragðgóður og ferskur, sá hann ekki í ríkinu um daginn en hlakka til þegar hann verður í boði. En ég fékk mér einungis smá smakk þar sem ég þurfti að fara á næturvakt og gat þess vegna bara verið sutt. Það sem ég sá af tónleikunum var æði og það var dillað sér, hefði verið gaman að hafa ekki þurft að fara að vinna og geta bara haldið áfram að dansa.


Í byrjun mars var ég í sakleysi mínu að keyra frá Stórhöfða uppí vinnu (Eir) á kvöldvakt. Hafði verið á fagnámskeiðinu uppí Mímir og hafði nógan tíma til að mæta uppí vinnu. Var að keyra á 80km hraða þegar ég fæ stein í rúðuna (vinstra megin að aftan) og hún splundrast og allt glerið inn í bílinn, getiði ímyndað ykkur hvað mig brá?? Úff ömurlegt, svo var þetta daginn fyrir einn annan storminn. En við hjónin erum tryggð hjá Verði og ég svoleiðis hoppaði af hamingju þegar gæjinn í símanum sagði mér að við værum tryggð fyrir svona óhappi. Þannig  hann var einungis rúðulaus að aftan í einn og hálfan sólarhring.
 
Síðasta föstudag var kíkt á íshokkíleik þar sem Esjan vann 9-1 gegn Birninum. Því var fagnað! Held þetta hafi bara verið þriðji leikurinn sem ég hef farið á en þetta er agalega góð skemmtun. Þúsund kr inn fyrir ca 2 og hálfa klst hasar, vel þess virði. Mæli eindregið með því að prófa að fara á íshokkíleik næst í staðinn fyrir td. bíó. Taka með sér brúsa af heitu pukka tei og kasjú hnetur, gúrme nasl.


Á laugardeginum var svokallað „Afþví bara partý“ heima hjá Önnu vinkonu minni þar sem við og nokkrir vel valdir einstaklingar skemmtun okkar til hins ýtrasta. Ég og Sigvaldi komum ekki heim fyrr en klukkan hálf6 um morgunin, það var bara svo gaman! Er svo þakklát fyrir fólkið í lífi mínu og  gæti ekki átt skemmtilegri vinkonur. Hlakka svo til að skapa fleiri æðislegar minningar með þeim í sumar. Talandi um sumar.. ohh hvað ég vona að við fáum loksins einhverja fjandans sól! Er byrjuð að halda að hún sé með ofnæmi fyrir Íslandi.

Annars er ég bara jolly þessa dagana. Stefni á að vera dugleg að stunda sund, er nú þegar búin að fara tvisvar og gengur svona lala, er orðin hundmóð eftir.. hvað 12-14 fram&tilbaka ferðir enda í toppformi, not. Sjáum til hvað þessi metnaður endist lengi. Svo er árshátíðin hjá Eir næsta föstudag. Hef tvisvar farið áður og þá var hún haldin á SPOT í kópavogi en í þetta skiptið verður hún haldin í Gullhömrum, víj hvað ég hlakka til líka afþví ég hef aldrei farið í þangað. Pís át!



 -hannaleam.


Monday, January 19, 2015

Næturvaktir

Loksins er ég búin með næturvaktirnar þrjár sem ég vinn í hverjum mánuði, annars er ég samtals á sjö næturvöktum. Tvær, tvær og þrjár í einu. Ég las einhversstaðar rannsókn um áhrifin sem næturvaktir hafa á karlmenn og konur og í þeirri rannsókn kom í ljós að næturvaktir eru erfiðari fyrir konur. Nú man ég ekki alveg afhverju það var nema jú eitthvað afþví konur eru með meiri hormón í líkamanum. En annars er það nátla mismunandi eftir fólki, sumir geta unnið td. 3-5 næturvaktir í röð og finna ekki fyrir neinu, konur og karlar. Á netinu eru margar greinar um allskonar heilsu vandamál sem má rekja til þess að vinna næturvaktir. "Why You Shouldn’t Work at Night", "Can our bodies adapt to being night owls? " & "Night shifts spark cancer pay-out". Ég veit samt ekki hvort það sé verið að tala um bara næturvaktir eða vaktavinnu almennt, dagur, kvöld og nótt.


Næturvaktir fyrir mig geta verið allt í lagi en líður oftast eins og uppvakningi eftir þær. Alveg sama hversu mikið ég sef er ég alltaf jafn þreytt td. reyni að vakna snemma um morguninn (næturvakt byrjar kl hálf12) reyni svo að gera eitthvað yfir daginn svo ég verði þreytt um 16:00 leytið. Reyni að fara sofa á milli 17:00-19:00. Stundum sef ég bara í klukkutíma og ef ég er heppin sef ég í þrjá tíma. Fer á næturvaktina hálf 12 og vinn til 08:00, kem heim og sef oftast til svona 14:00, fer þá á fætur og reyni svo að sofa aftur í þrjá tíma um kvöldið. Og þótt að ég reyni að sofa og sofa eins og ég get er ég dauðþreytt! Ótrúlegt. Fæ líka hausverki og þarf stundum að taka verkjalyf því þeir eru það miklir. Einnig er stórhættulegt að keyra heim eftir vaktirnar, fyrir mig er þetta svona "Úps.. er komin uppí 100km" eða "Kaaantur!" haha þið skiljið.


Svo er ég nátla búin að vera að díla við veikindi síðan fyrir jól og það hjálpar ekkert í vaktavinnu, enda er ekkert mál að vinna vaktavinnu þegar maður er með 100% orku en ég hef verið í 80-90% undanfarið.


Vonandi þarf ég ekki að vinna næturvaktir í mörg ár til viðbótar.


-hannaleam.





Monday, November 3, 2014

Saman í 9ár!

Ég og maðurinn minn ákváðum að fara í Garheima um helgina og kaupa okkur pottaplöntu í tilefni af því að við áttum 9 ára sambandsafmæli um daginn. Ég spurði aðstoðarkonuna hvort hún gæti bent mér á plöntur sem væri erfitt að drepa og þyrftu lítið sólarljós. Það er bara einn gluggi á íbúðinni minni og hann snýr að tröppum (grár veggur) þannig það kemst mjög lítil birta inn til okkar. Okkur leist best á "SaintPaulia" sem er pottaplanta með blómum og þykkum loðnum laufum. Ég valdi plöntu með fjólubláum og hvítum blómum en er því miður ekki með snjallsíma né myndavél þannig hérna er mynd sem ég fann á google.



Nú er ég að fara sofa því ég er að vinna næturvakt í nótt. Kem heim um morguninn á morgun og sef í 3og hálfan klukkutíma, mæti svo á námskeiðið sem er til hálf 5. Beint heim eftir það, aftur að sofa og aftur á næturvakt. Næsta dag sef ég aftur bara í 3og hálfan tíma og mæti svo á námskeiðið. Ahhh verð dauuuðþreytt! Alveg saman hvað ég sef mikið fyrir og eftir næturvaktir er ég alltaf jafn þreytt á nóttinni. Las einhverntímann rannsókn um næturvaktir og kynin og þar kom í ljós að næturvaktir væru erfiðari fyrir kvenmenn, man bara að það tengdist eitthvað hormóna starfseminni okkar. En segjum þetta gott,

Stundum lendir maður í því


-hannaleam.