Showing posts with label kvöldrútína. Show all posts
Showing posts with label kvöldrútína. Show all posts

Wednesday, October 29, 2014

Góða kvöldið.

Fátt betra en að koma heim eftir langan dag, klæða sig í kósý fötin og koma sér vel fyrir uppí rúmi með tölvuna fyrir framan sig. Emilía vinkona mín er svo yndisleg að leyfa mér alltaf að fljóta með sér fram og tilbaka uppí Mímír (þar sem fagnámskeiðið er haldið). Eftir að námsskeiðinu lauk þurfti hún að líta við á bókasafnið og þá nýtti ég mér tækifærið og fékk lánaðar nokkrar prjónabækur. Er búin að ætla læra prjóna í þó nokkurn tíma núna en þið vitið hvernig lífið flækist stundum fyrir manni. Sofa, vinna, borða, reapeat! Liggur við. Nú er bara kaupa garn, prjóna og byrja.

Ein bókin sem ég fékk að láni

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------


Keypti mér nýjan andlitshreinsi um daginn og er búin að prófa hann nokkrum sinnum. Niðurstaðan er sú að mér finnst hann frekar ömurlegur. Hann fæst í Iceland á 300-400kr og heitir Tea Tree - foaming face wash. Ég er algjör sökker fyrir tea tree vörum og svo kostaði hann bara klink þannig ég ákvað að prófa en hann þrífur bara alls ekki nógu vel. Ég þvæ alltaf á mér andlitið á kvöldin og hef verið að nota Clearasil sem nær allri málningunni úr andlitinu á mér og er bara ótrúlega góður og frískandi. Eftir það nota ég toner frá Clear and Clear og að lokum næturkrem frá Nivea.




--------------------------------------------------------------------------------------------------------------



Hérna er svo uppskrift af rosalega góðri kjúklingasúpu.
Þessa elduðum við Sigvaldi saman í kvöld.

1 pakki af kjúklingabringum -fyrirfram skorið og steikt
   (eða heill kjúklingur úr Nóatúni)
1 og hálf paprika
1 púrrulaukur
3 hvítlauksrif
1 askja rjómaostur (stór)
1 flaska Heinz chilli sósa
   svartur pipar
   salt
   karrý
   vatn

Aðferð:
Hvítlauksrifin eru kreist og kramin. Púrrlaukurinn er skorinn í þunnar sneiðar. Paprikan söxuð. Alt þetta er steikt í potti.


Svo bætist við: 
Rjómaosturinn, Heinz chilli sósan, svartur pipar fer þá ofan í, magn fer eftir smekk kokksins, sting upp á 1 teskeið. Súpan er þynnt með vatni. Magn vökvans fér einnig eftir kokknum. Þá fara úr í súpuna 2 matskeiðar karrý. Eki láta þér bregða, þetta gerir gæfumuninn! Svo er að bragbæta með salti og pipar. Svo er kjúklingnum sturtað út í og hrært af lyst. Mæli með að nota maizena mjöl til að þykkja súpuna.

Svo er rifinn ostur og svart doritos algjört möst! 



--------------------------------------------------------------------------------------------------------------




Eigið gott kvöld elskurnar,

-hannaleam.