Friday, October 31, 2014

Halloween 2014

Hvað ætlar þú að vera í kvöld eða á morgun?
 
Mér er boðið í afmælis halloween partý annað kvöld og hef ákveðið að vera álfadís eða fairy (hljómar flottara á ensku). Ég keypti mér hárskraut í kolaportinu á 100kr, það er með fiðrildum og laufblöðum. Svo verð ég öll í glimmeri, með grænt naglalakk og grænan varalit kanski líka. Það eina sem mig vantar er outfitt.. Tjaa er komin með kjól sem vinkona mín ætlar að lána mér. Reyndar ætlar hún að vera í honum í kvöld sem álfadís þannig ég vona að það verði ekkert vesen að pikka hann upp á morgun. Verð í svörtum ballerínu skóm þar sem ég er búin að gefast upp á því að vera í hælum, sem er ömurlegt þar sem ég er svo lágvaxin! Fæ bara svo mikinn sársauka undir ilina, hjartsláttinn sem maður fær þegar manni verkjar einhversstaðar. Nokkrum sinnum hefur það eyðilagt fyrir mig gott djamm þar sem ég bara get ekki skemmt mér til fulls því mig verkjar og svíður svo í fæturnar. Hef alveg átt nokkur stykki af hælaskóm en það er sama sagan með þau öll. 

Hérna eru hugmyndir af auðveldum búningum..



-hannaleam.

H&M Home Óskalisti

Vá hvað við Íslendingar yrðum himinlifandi ef H&M myndi opna verslun hér á landi, furðulegt að það sé ekki búið að gerast. Mér finnst gaman að kíkja á netverslunina hjá þeim og láta mig dreyma.... Ég hefði ekkert á móti því að fá þessar vörur inná mitt heimili.



1. Velvet cuhion cover £14.99 / 2938kr 2. Fake fur blanket £49.99 / 9799kr 3. Metal basket £7.99 / 1566kr 4. 2-pack Christmas decorations £3.99 / 782kr 5. Ceramic chopping board £9.99 / 1958kr 6. Knitted cushion cover £14.99 / 2938kr 7. Glass candlestick £6.99 / 1370kr 8. Cotton rug £19.99 / 3918kr 9. Metal plant pot £7.99 / 1566kr 10. Metal tealight lantern £12.99 / 2546kr 11. Glass box with a lid £6.99 / 1370kr 12. Linen duven set double £59.99 / 11759kr

Góða helgi!

-hannaleam.

Thursday, October 30, 2014

Tattú inspó

Í janúar 2013 fékk ég mér mitt fyrsta og eina tattúið sem ég er með. Það er tileinkað móður minni og mig þykir mjög vænt um það. Ég fór á bleksmiðjuna þar sem hún Sigrún tattúveraði mig og það tók ca 2tíma. Sársaukinn var svona vond/góð tilfinning í bland við adrenalín, sem er bara frekar næs. Var búin að vera með þessa mynd í höfðinu á mér og bíða í 2 og hálft ár til að vera alveg viss um að fá mér hana á líkamann. Þetta er lína eftir Abraham Lincoln og rósir sem eru uppáhalds blómin hennar mömmu.


Það er ekki hægt að fá sér bara eitt tattú. Þegar maður fær sér eitt langar manni alltaf í annað. Er með nokkrar hugmyndir af öðrum tattúum sem ég væri til í og það er gaman að skoða svipaðar myndir og fá hugmyndir útfrá þeim. Auðvitað myndi ég aldrei vilja nákvæmlega eins og einhver annar. Hægt er að fara með mynd sem þý finnur á netinu og biðja artistann um að breyta og laga til eins og þú villt hafa hana.

Hérna eru nokkur tattú sem mér finnst flott.



 -hannaleam.



Wednesday, October 29, 2014

Góða kvöldið.

Fátt betra en að koma heim eftir langan dag, klæða sig í kósý fötin og koma sér vel fyrir uppí rúmi með tölvuna fyrir framan sig. Emilía vinkona mín er svo yndisleg að leyfa mér alltaf að fljóta með sér fram og tilbaka uppí Mímír (þar sem fagnámskeiðið er haldið). Eftir að námsskeiðinu lauk þurfti hún að líta við á bókasafnið og þá nýtti ég mér tækifærið og fékk lánaðar nokkrar prjónabækur. Er búin að ætla læra prjóna í þó nokkurn tíma núna en þið vitið hvernig lífið flækist stundum fyrir manni. Sofa, vinna, borða, reapeat! Liggur við. Nú er bara kaupa garn, prjóna og byrja.

Ein bókin sem ég fékk að láni

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------


Keypti mér nýjan andlitshreinsi um daginn og er búin að prófa hann nokkrum sinnum. Niðurstaðan er sú að mér finnst hann frekar ömurlegur. Hann fæst í Iceland á 300-400kr og heitir Tea Tree - foaming face wash. Ég er algjör sökker fyrir tea tree vörum og svo kostaði hann bara klink þannig ég ákvað að prófa en hann þrífur bara alls ekki nógu vel. Ég þvæ alltaf á mér andlitið á kvöldin og hef verið að nota Clearasil sem nær allri málningunni úr andlitinu á mér og er bara ótrúlega góður og frískandi. Eftir það nota ég toner frá Clear and Clear og að lokum næturkrem frá Nivea.




--------------------------------------------------------------------------------------------------------------



Hérna er svo uppskrift af rosalega góðri kjúklingasúpu.
Þessa elduðum við Sigvaldi saman í kvöld.

1 pakki af kjúklingabringum -fyrirfram skorið og steikt
   (eða heill kjúklingur úr Nóatúni)
1 og hálf paprika
1 púrrulaukur
3 hvítlauksrif
1 askja rjómaostur (stór)
1 flaska Heinz chilli sósa
   svartur pipar
   salt
   karrý
   vatn

Aðferð:
Hvítlauksrifin eru kreist og kramin. Púrrlaukurinn er skorinn í þunnar sneiðar. Paprikan söxuð. Alt þetta er steikt í potti.


Svo bætist við: 
Rjómaosturinn, Heinz chilli sósan, svartur pipar fer þá ofan í, magn fer eftir smekk kokksins, sting upp á 1 teskeið. Súpan er þynnt með vatni. Magn vökvans fér einnig eftir kokknum. Þá fara úr í súpuna 2 matskeiðar karrý. Eki láta þér bregða, þetta gerir gæfumuninn! Svo er að bragbæta með salti og pipar. Svo er kjúklingnum sturtað út í og hrært af lyst. Mæli með að nota maizena mjöl til að þykkja súpuna.

Svo er rifinn ostur og svart doritos algjört möst! 



--------------------------------------------------------------------------------------------------------------




Eigið gott kvöld elskurnar,

-hannaleam.

Tuesday, October 28, 2014

Góðan daginn!

Sæl veriði! Mín vaknaði við heljarinnar læti í morgun þar sem nágranninn var að "brjóta sér leið inn til mín", hljómaði í minnsta kosti þannig. Varð verulega pirruð! Ég sem ætlaði að sofa út... Vann næturvakt á sunnudaginn og í gær þurfti ég að vakna klukkan 12:00 til að mæta á Fagnámskeið 1, þannig ég var búin að sofa í 3 og hálfan tíma. Í dag er ég aftur að fara mæta á fagnámskeiðið sem hefst kl:13:30 svo fer ég beint á kvöldvakt og er að vinna til hálf12. Lífið er yndisleeeeegt..

Fagnámskeið 1 hófst 6.ókt og lýkur 26.nóv. Þrisvar í viku frá 13:30 til 16:30. Efling borgar námskeiðið fyrir mig, ég fæ laun á meðan ég er á námskeiðinu og ég hækka um launflokk. Græði bara á þessu. Eftir áramót er svo hægt að fara í Fagnámskeið 2 og hækka aftur um launaflokk. Auðvitað fer ég líka í það. Svo get ég farið í tveggja ára nám í FB til að klára sjúkraliðann og er að spá í því.

Hérna eru ljúfir þriðjudags tónar.


--------------------------------------------------------------------------------------
Um daginn ákvað ég að prófa að lesa Ísfólkið og ég kolfékk fyrir þessum bókum. Hef virkilega gaman af því að lesa um ævintýri og gamla tíma. Það kom mér rosalega á óvart að ég náði að sökkva ofan í þetta þar sem ég les vanalega bækur á ensku. Hef reynt að lesa bækur á íslensku en ég missi fljótt áhugann. Er ekki alveg viss hvað það er.. gæti verið að það sé afþví að móðir mín lét mig alltaf lesa fyrir hana á ensku á kvöldin þegar ég var barn. Er alveg að fara klára fjórðu bókina en þá held ég að lestrartímabilið mitt sé búið. Lestrartímabilið mitt er tímabilið sem ég les og les og les þangað til ég missi áhugan um óákveðin tíma. Bíð bara þangað til að áhuginn komi aftur.


 En nú þarf ég að drulla mér á fætur og skella mér í sturtu fyrir námskeiðið. 

-hannaleam.

Fyrsta bókin

Monday, October 27, 2014

Einu sinni var...

Ég átti eitt sinn blogg og ég naut þess að blogga. Ég blogga aðallega fyrir mig og það er algjör plús ef fólk hefur gaman af því að lesa bloggin mín. Það skemmtilegasta sem mér finnst við það að eiga blogg er að líta tilbaka og lesa minningar sem ég er alveg búin að gleyma. Ég átti blogcentral síðu enn það kerfi hætti að virka, mikið fannst mér það ömurlegt. Ég ætla aðallega að blogga um mitt daglega líf, pælingar, meðmæli og beauty tips.

Njótið, xoxo.

-hannaleam.