Vaknaði seint í morgun og staulaðist á fætur. Eldaði mér hafragraut og settist svo niður til að lesa blöðin. Í grafarvogsblaðinu rakst ég á ömurlega grein! Foldasafnið í Grafarvogskirkju er að flytja í stærra húsnæði sem er gamla World Class í Spönginni. Ohh hvað mér finnst það ömurlegt! Það tekur mig svona 2mín að labba niður í Foldasafn og mér finnst æðislegt að hanga þar. Skoða nýjustu tímaritin og fá lánaðar bækur. Þannig ég er strax farin að syrgja bókasafnsins míns. Ég og maðurinn minn rekum bara einn bíl þannig ég get ekki lengur kíkt hvenar sem er á bókasafnð þegar mér hentar, ugh leiðinlega frétt dagsins.
Annars kom Ásta vinkona mín rétt fyrir hádegi og fórum út, aðeins að stússast. Stoppuðum við í Krónunni þar sem ég ætlaði að kaupa mér svona 10 ávexti í poka tilboð. Þar tók ég eftir leik sem Garnier og Krónan er með. Þú kaupir semsagt einhverja vöru frá Garnier festir kvittunina á þáttökuseðilinn og skellir honum svo í kassan í versluninni. Þótt mig vantar í rauninni ekki neitt valdi ég mér Garnier Micellar Cleansing Water einungis til að taka þátt í leiknum. Var búin að sjá annan bloggara hrósa þessari vöru þannig mig langaði til að prófa. Prófaði einnig að googla vöruna og hún fær góða dóma inná MakeUpAlley. Mæli rosalega með þessari síðu, fólk ætti að leggja það í vana sinn að lesa um vörurnar áður en þær kaupir þær.
Vinningarnir eru 100þúsund króna gjafabréf í Smáralind, 30þúsund króna gjafabréf í Krónunni og (held ég skilji þetta rétt) 30 gjafaöskjur frá Garnier. Dregið verður út 15.des. Þá er bara að bíða og vona.
Í kvöld ætla ég að kíkja til Jóhönnu vinkonu minnar. Höfum ákveðið að skrifa saman jólakort, ohh hvað mig hlakkar til að eyða tíma með henni. Spjalla, hlæja, drekka te og hlusta kanski á jólalög. Svo best.
-hannaleam.
