Showing posts with label óhapp. Show all posts
Showing posts with label óhapp. Show all posts

Tuesday, March 10, 2015

Nýt lífsins


Þegar þetta er skrifað er ég á næturvakt. Ákvað að nýta tímann sem ég hef á næturvaktinni til að henda í eitt blogg sem ég gæti þá sett inn á morgun, eða núna semsagt. Það er búið að vera hellingur að gera hjá mér (lífið, vinna, námskeið= repeat) þannig ég hef ekkert haft neinn tíma til að drepa í blogg, enda er það einskonar leið fyrir mig að dunda mér. En ég þyrfti að vera duglegri því það er svo gaman að líta tilbaka. Hmm hvað hef ég gert undanfarið sem er svona semi merkilegt að segja frá? Laugardaginn 28.febrúar (I know, svoldið síðan) skellti ég mér á Amabadama tónleikana sem voru haldnir í Stúdentakjallaranum. Tilefni tónleikana var að fagna að það væri byrjað að glitta í sólina. Svo var einnig verið að kynna nýjan drykk sem heitir Sólbert, ávaxtabjór með sítrónu eða brómberja bragði. Mjög bragðgóður og ferskur, sá hann ekki í ríkinu um daginn en hlakka til þegar hann verður í boði. En ég fékk mér einungis smá smakk þar sem ég þurfti að fara á næturvakt og gat þess vegna bara verið sutt. Það sem ég sá af tónleikunum var æði og það var dillað sér, hefði verið gaman að hafa ekki þurft að fara að vinna og geta bara haldið áfram að dansa.


Í byrjun mars var ég í sakleysi mínu að keyra frá Stórhöfða uppí vinnu (Eir) á kvöldvakt. Hafði verið á fagnámskeiðinu uppí Mímir og hafði nógan tíma til að mæta uppí vinnu. Var að keyra á 80km hraða þegar ég fæ stein í rúðuna (vinstra megin að aftan) og hún splundrast og allt glerið inn í bílinn, getiði ímyndað ykkur hvað mig brá?? Úff ömurlegt, svo var þetta daginn fyrir einn annan storminn. En við hjónin erum tryggð hjá Verði og ég svoleiðis hoppaði af hamingju þegar gæjinn í símanum sagði mér að við værum tryggð fyrir svona óhappi. Þannig  hann var einungis rúðulaus að aftan í einn og hálfan sólarhring.
 
Síðasta föstudag var kíkt á íshokkíleik þar sem Esjan vann 9-1 gegn Birninum. Því var fagnað! Held þetta hafi bara verið þriðji leikurinn sem ég hef farið á en þetta er agalega góð skemmtun. Þúsund kr inn fyrir ca 2 og hálfa klst hasar, vel þess virði. Mæli eindregið með því að prófa að fara á íshokkíleik næst í staðinn fyrir td. bíó. Taka með sér brúsa af heitu pukka tei og kasjú hnetur, gúrme nasl.


Á laugardeginum var svokallað „Afþví bara partý“ heima hjá Önnu vinkonu minni þar sem við og nokkrir vel valdir einstaklingar skemmtun okkar til hins ýtrasta. Ég og Sigvaldi komum ekki heim fyrr en klukkan hálf6 um morgunin, það var bara svo gaman! Er svo þakklát fyrir fólkið í lífi mínu og  gæti ekki átt skemmtilegri vinkonur. Hlakka svo til að skapa fleiri æðislegar minningar með þeim í sumar. Talandi um sumar.. ohh hvað ég vona að við fáum loksins einhverja fjandans sól! Er byrjuð að halda að hún sé með ofnæmi fyrir Íslandi.

Annars er ég bara jolly þessa dagana. Stefni á að vera dugleg að stunda sund, er nú þegar búin að fara tvisvar og gengur svona lala, er orðin hundmóð eftir.. hvað 12-14 fram&tilbaka ferðir enda í toppformi, not. Sjáum til hvað þessi metnaður endist lengi. Svo er árshátíðin hjá Eir næsta föstudag. Hef tvisvar farið áður og þá var hún haldin á SPOT í kópavogi en í þetta skiptið verður hún haldin í Gullhömrum, víj hvað ég hlakka til líka afþví ég hef aldrei farið í þangað. Pís át!



 -hannaleam.