Showing posts with label youtube. Show all posts
Showing posts with label youtube. Show all posts

Wednesday, November 19, 2014

Tónlistin

Ég myndi kalla mig tónlistar alætu. Ég fíla bara svo rosalega mikið af allskonar tónlist. Hef aldrei skilið það hvernig fólk getur td. fílað bara rokk eða bara hiphop. Hvað þá ef það fílar bara einn artista og hlustar stanslaust á sama diskinn, ekki myndi ég meika það. Elska að finna ný eða gömul lög á youtube. Veit ekki hvað það er sem lætur mig fíla lagið, i just do (góð pæling). Þótt ég hlusti oftast á Fm957 í bílnum, hlusta ég ekkert endilega á þessi lög í tölvunni. Eða skiljiði hvað ég meina? Finnst oft fólk halda að maður eigi engan tónlistarsmekk einungis því maður stillir á fm í bílnum eða við heimilisþrifin. Hef oft lent í því að uppgvötva eitthvað lag í bíómynd og ég verð að finna það í tölvunni svo ég geti hlustað á það á repeat. Næ líka í heilt album með lögum úr bíómynd. Síðast var það td. Divergent albumið, ótrúlega góð lög voru notuð í þeirri mynd.


Tove Lo aka Ebba Tove Elsa Nilson fædd 1987 er sænk söngkona sem varð fræg fyrir lagið sitt "Habits (Stay High)" sem er búið að vera nonstop á fm. Ekki komið nóg haha? Hún var að gefa út nýtt album sem heitir "Queen of the Clouds" sem inniheldur lagið "Talking Body". Rakst á það rétt áðan, tónlistin og textinn hreif mig strax. Njótið!



Er búin að vera vinna síðan á sunnudaginn og á morgun á ég loksins frídag! Vá hvað mig hlakkar til að sofa út, taka íbúðina í gegn og njóta dagsins. Það þarf aaaðeins að slappa af, stundum finnst mér stressið vera að kæfa mig.

-hannaleam.