Eins og ég hef minnst á áður er bloggið mitt einskonar afþreying. Hef verið með smá bömmer yfir því að vera ekkert að blogga en svo hugsaði ég djók, ég er bara að gera þetta fyrir mig og engan annan þannig „who gives a fudge“. Fyrir mér er það að blogga alveg eins afþreying og að lesa, horfa á bíómynd eða lakka neglurnar.
Í þessu augnabliki (05:27) er ég á næturvakt (1/3), var að horfa á „To Write Love on her Arms“ -2015 með Kat Dennings í aðalhlutverki. Myndin fjallar um unga stelpu með geðhvarfasýki sem byrjar í mikilli neyslu en ákveður svo að snúa sér á réttu brautina með aðstoð vina sinna. Endilega tjékkið á þessari, fannst hún allavega frábær og gæjarnir í myndinni ekki af verri endanum. Var ekki í stuði til að horfa á aðra mynd þannig ég ákvað bara að henda í eitt blogg og hlusta á „Night Visions“ með Imagine Dragons sem er ein af uppáhalds plötunum mínum. Það þarf ekki að skippa yfir neitt lag því öll lögin eru æði. Það sama má segja um plötuna hennar Lana Del Rey – „Born to Die“.
Var að koma úr langri lestrarpásu, stoppaði við á bókasafninu um daginn og tók að láni nokkrar bækur. „Fiend“ eftir Peter Stenson er án efa ein að bestu bókunum sem ég hef lesið! Klárlega frábær bók til að byrja á eftir lestrarpásu. (NO SPOILERS) Skáldsagan inniheldur snarklikkaða og veruleikafirrta dópista, endalausa neyslu og uppvakninga. Hahaha þessi bók er svo biluð! Allt morandi í glorhungruðum uppvakninum en það eina sem karakterarnir fókusera á er að viðhalda vímunni. Mæli klárlega með þessari, þegar þú byrjar geturu ekki lagt hana frá þér hún er svo spennandi.
Það var yndislegt að fá sólina í gær, tók extravakt um morgunin en skellti mér svo í sólbað í sundi eftir vaktina. Ég fæ án gríns samviskubit ef ég er inni og það er fabjúlös veður úti, þannig ég frestaði heimilisþrifunum þangað til í dag. Það á víst að vera rigning alla helgina, yay Ísland. Vil samt minna ykkur á að nota sólarvörn þótt það sé skýjað því geislarnir eru til staðar þótt við sjáum þá ekki. Hrukkur eru helstu afleiðingar of mikillar sólar. Keypti mér ódýrt (800kr?) andlitskrem frá Garnier í Bónus um daginn. Kremið er með 20spf, góð fyrir þreytta húð og er „illuminating“ þannig maður fær svona fallegan ljóma yfir andlitið.
Afþví ég átti þessa umræðu við góða vinkonu mína og langaði til þess að deila henni: Smá pepp fyrir þær sem eru ósáttar með kílóin og finnast þær þurfa að vinna aðeins í sínum málum: Bara það að sleppa því td. að drekka ávaxtasafa (sykur er sykur þótt hann sé kallaður ávaxtasykur) eða orkudrykki er frábær byrjun. Bara það að sleppa eða minnka einhvað ákveðið er stórt skref í átt að betri lífstíl. Venja sig á nýja siði eins og td. að borða epli í millimál í stað þess að borða kex. Vona að ég sé að útskýra þetta nógu vel, semsagt pointið er að byrja á einhverju einu svo bætist alltaf eitthvað nýtt við, næstum ósjálfrátt. Ég er td. mjög löt við að hreyfa mig, fer stundum að synda eða út að ganga en ekki eins oft og ég ætti að gera. Þess vegna finnst mér auðveldara að hugsa um það sem ég læt ofan í mig, ég er samt engan veginn einhver heilsugúrú. Ég borða alveg allt sem mig langar virkilega í, en fæ mér þá bara minni skammta. Td. tvær pizzu sneiðar í staðinn fyrir þrjár og vatn, vatn, vatn í staðinn fyrir gos. Stundum kaupi ég mér einhvað skyndibitatilboð þar sem gos fylgir með og þá drekk ég það alveg, finnst það í lagi þar sem ég myndi td. aldrei setja kók í innkaupakerruna hjá mér. Kaupi mér aldrei gos nema stundum sítrónu Kristal svona einu sinni í mánuði eða sjaldnar. Nr. 1, 2 og 3 er að elska sjálfan sig! Ekki vera vond og refsa sjálfri þér með neikvæðni (brjóta sig niður) fyrir að hafa fengið þér súkkulaði stykki. Finnst langbest að vera á þessum stað, borða það sem ég vil og líða vel enda er það líðanin hjá manni sem skiptir öllu máli.
-hannaleam.
![]() |
| 11.maí |



