Þegar þetta er
skrifað er ég á næturvakt. Ákvað að nýta tímann sem ég hef á næturvaktinni til
að henda í eitt blogg sem ég gæti þá sett inn á morgun, eða núna semsagt. Það
er búið að vera hellingur að gera hjá mér (lífið, vinna, námskeið= repeat)
þannig ég hef ekkert haft neinn tíma til að drepa í blogg, enda er það
einskonar leið fyrir mig að dunda mér. En ég þyrfti að vera duglegri því það er
svo gaman að líta tilbaka. Hmm hvað hef ég gert undanfarið sem er svona semi
merkilegt að segja frá? Laugardaginn 28.febrúar (I know, svoldið síðan) skellti
ég mér á Amabadama tónleikana sem voru haldnir í Stúdentakjallaranum. Tilefni
tónleikana var að fagna að það væri byrjað að glitta í sólina. Svo var einnig verið
að kynna nýjan drykk sem heitir Sólbert, ávaxtabjór með sítrónu eða brómberja
bragði. Mjög bragðgóður og ferskur, sá hann ekki í ríkinu um daginn en hlakka
til þegar hann verður í boði. En ég fékk mér einungis smá smakk þar sem ég þurfti
að fara á næturvakt og gat þess vegna bara verið sutt. Það sem ég sá af
tónleikunum var æði og það var dillað sér, hefði verið gaman að hafa ekki þurft
að fara að vinna og geta bara haldið áfram að dansa.
Í byrjun mars var ég í sakleysi mínu að keyra frá Stórhöfða
uppí vinnu (Eir) á kvöldvakt. Hafði verið á fagnámskeiðinu uppí Mímir og hafði
nógan tíma til að mæta uppí vinnu. Var að keyra á 80km hraða þegar ég fæ stein
í rúðuna (vinstra megin að aftan) og hún splundrast og allt glerið inn í
bílinn, getiði ímyndað ykkur hvað mig brá?? Úff ömurlegt, svo var þetta daginn
fyrir einn annan storminn. En við hjónin erum tryggð hjá Verði og ég svoleiðis
hoppaði af hamingju þegar gæjinn í símanum sagði mér að við værum tryggð fyrir
svona óhappi. Þannig hann var einungis
rúðulaus að aftan í einn og hálfan sólarhring.
Síðasta föstudag var kíkt á íshokkíleik þar sem Esjan vann
9-1 gegn Birninum. Því var fagnað! Held þetta hafi bara verið þriðji
leikurinn sem ég hef farið á en þetta er agalega góð skemmtun. Þúsund kr inn
fyrir ca 2 og hálfa klst hasar, vel þess virði. Mæli eindregið með því að prófa
að fara á íshokkíleik næst í staðinn fyrir td. bíó. Taka með sér brúsa af heitu
pukka tei og kasjú hnetur, gúrme nasl.
Á laugardeginum var svokallað „Afþví bara partý“ heima hjá
Önnu vinkonu minni þar sem við og nokkrir vel valdir einstaklingar skemmtun
okkar til hins ýtrasta. Ég og Sigvaldi komum ekki heim fyrr en klukkan hálf6 um
morgunin, það var bara svo gaman! Er svo þakklát fyrir fólkið í lífi mínu og gæti ekki átt skemmtilegri vinkonur. Hlakka
svo til að skapa fleiri æðislegar minningar með þeim í sumar. Talandi um
sumar.. ohh hvað ég vona að við fáum loksins einhverja fjandans sól! Er byrjuð
að halda að hún sé með ofnæmi fyrir Íslandi.
Annars er ég bara jolly þessa dagana. Stefni á að vera
dugleg að stunda sund, er nú þegar búin að fara tvisvar og gengur svona lala,
er orðin hundmóð eftir.. hvað 12-14 fram&tilbaka ferðir enda í toppformi,
not. Sjáum til hvað þessi metnaður endist lengi. Svo er árshátíðin hjá Eir
næsta föstudag. Hef tvisvar farið áður og þá var hún haldin á SPOT í kópavogi
en í þetta skiptið verður hún haldin í Gullhömrum, víj hvað ég hlakka til líka afþví
ég hef aldrei farið í þangað. Pís át!
-hannaleam.


