Núna eru einungis 43 dagar í jólin og mig hlakkar svo til! Klæjar í puttana, mig langar svo að byrja að skreyta. Er búin að kaupa nánast allar jólagjafirnar og vá hvað það er næs að vera í engu stressi. Nú get ég haft það kósý í desember, föndrað og pakkað inn jólagjöfum við góða jólatónlist. Hef aldrei verið jafn mikið jólabarn og núna. Hef alltaf viljað byrja á jólatónlistinni í fyrsta lagi 1.des en í ár er ég alveg rosalega spennt. Held líka að málið sé það að þetta er í fyrsta sinn sem ég held uppá jólin í minni eigin íbúð. Ég er ein af þeim sem hlustar vel á vinkonur mínar allt árið og ef þær nefna einhvað sérstakt sem þeim langar í reyni ég að leggja það vel á minnið fyrir jólin. Það er vanalega ekkert mál fyrir mig að kaupa jólagjafir handa ástvinum mínum og finnst það bara ánægjulegt.
Ætla að deila með ykkur nokkur ráðum:
Nr. 1 - 2 og 3 er að vera vel skipulögð í kringum jólin. Best er að klára gjafirnar sem fyrst svo maður hafi nú tíma til að njóta hátíðarinnar. Einnig er gott að fylgjast með öllum tilboðum, þannig er hægt að kaupa td. eitthvað sem vinkonu manns langaði svo í, á góðu verði. Gjafabréf er skotheld gjöf, það getur td. verið gjafabréf í nudd, í kringluna, út að borða eða í leikhús. Einnig er sniðugt að gefa ostakörfur og eða vín fyrir þá sem að eiga allt. Endilega munið líka eftir því að biðja um skilamiða á gjafirnar. Ef þið hafið ekki mikið á milli handana finnst mér alltaf jafn flott að gefa mynd í ramma, td. af ykkur saman. Svo er einnig hægt að skrifa eitthvað orðatiltæki, inspo, quote eða jafnvel teikna mynd og setja í rammann.
Það er oft sem pökkunarborðið í kringlunni er troðið, finnst óþægilegt að pakka inn í svona miklu áreiti. Mæli með því að taka bara gjafapappírinn og böndin með þér heim, þar geturu pakkað í friði með nóg af plássi. Svo gæti ég haldð endalaust áfram en þetta er komið gott.
Vona að þetta minnki jólastressið ykkar.
-hannaleam.
