Showing posts with label jólin. Show all posts
Showing posts with label jólin. Show all posts

Sunday, December 28, 2014

Jólin 2014

Jólin í ár voru yndisleg, er svo þakklát og ánægð með gjafirnar sem ég fékk. Svo sýnist mér flestir ánægðir með gjafirnar sem ég gaf. Ég fékk m.a. rúmföt, naglalökk, eldfastmót frá Rosendahl, skálar frá Rosendahl, 5000kr gjafabréf í kringluna, hitakrús, Mac varalit - Amorous, kjól úr H&M, tekönnu með síu, trefil, bolakjól úr H&M og margt fleira fallegt.



Á aðfangadag var þriggja rétta dinner.
Humarsúpa í forrétt, lambahryggur í aðalrétt
og sítrónu frómas með rjóma í desert, mmmm!


Á aðfangadag ætluðum við hjúin að skjótast út í búð en þá kom í ljós að bílinn vildi ekki fara í gang, eða jú hann fór í gang en drap svo strax á sér aftur. Yndislegt alveg hreint! Jólin og svo helgi þannig ég get fyrst byrjað að hringja á verkstæði í fyrramálið.

Okkur var boðið í matarboð á jóladag hjá yndislegri vinkonu og afþví bílinn var bilaður sótti hún okkur og skutlaði okkur svo heim um kvöldið. Hjá henni fengum við síld með rúgbrauði, hangikjöt og ris ala mande. Þetta var í fyrsta skipti held ég sem ég tek þátt í svona "ris ala mande leik" og ég vann! Fékk möndluna og flottan vinning. Eftir matinn var kveikt í eldstæðinu og spilað alias, æðislegur dagur með góðu fólki.

Var að klára bókina Dance, dance, dance eftir Haruki Murakami. "High-class call girls billed to Mastercard. A psychic 13-year-old dropout with a passion for Talking Heads. A hunky matinee idol doomed to play dentists and teachers. A one-armed beach-combing poet, an uptight hotel clerk and one very bemused narrator caught in the web of advanced capitalist mayhem. Combine this offbeat cast of characters with Murakami's idiosyncratic prose and out comes Dance Dance Dance." Er staðráðin í því að lesa allt eftir þennan mann, snillingur. Allar bækurnar sem ég hef lesið so far eru svo súrrealískar og hann býr til svo fallega heima en einnig drungalega. Bækurnar hans fá mann til að hugsa og sitja virkilega eftir.



Hlakka svo til áramótanna, horfa á fréttaannállinn 2014, áramótaskaupið og skála með yndislegu fólki.


-hannaleam.




Wednesday, December 17, 2014

7dagar í jólin!

Tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða! Núna eru bara 7 dagar í jólin og vá hvað það er notalegt að vera löngu búin að öllu. Varð veik aftur síðasta sunnudag, vaknaði hress og kát og var svo komin með hita um kvöldið, yndislegt. Er búin að liggja orkulaus heima hjá mér að horfa á bíómynd eftir bíómynd. Mæli með nokkrum sem ég horfði á: "Edge of Tomorrow", "Horns" og "Hachiko: A Dog's Tale", grét þvílíkt yfir síðustu myndinni. Á tíma hjá lækni á morgun og vonandi getur hann gefið mér einhverjar útskýringar á þessum veikindum, ekki eðlilegt að fá hita 1 til 2 í mánuði.

Edge of Tomorrow, Horns og Haciko: A Dog's Tale.

 Á morgun á ég líka tíma í... klippingu! Vúhú, er sko búin að bíða spennt! Meira en helmingurinn af hárinu mínu fær að fjúka og það verður svo mikið frelsi. Get samt alveg garanterað það að ég mun væla yfir því eftir svona viku, en það er í lagi. Held ég muni gera þetta framvegis, safna í 4 ár og klippa svo allt af og byrja svo aftur að safna oog klippa allt af, you get it. Reyni að skella inn mynd umleið og ég get.


Komst loksins aðeins út úr húsi í dag (enda búin að vera föst inni síðan á sunnudaginn) og er þessi snjór eitthvað grín? Fæ alltaf lagið "Winter Wonderland" úr Happy Feet á heilann þegar ég sé allan þennan snjó. Aðstoðaði vinkonu mína við jólainnkaup og kíktum svo við í Korpu Outlet, þar fann ég sundbol á 2500kr frá Arena. Heavý sátt enda búin að leita mér að sundbol lengi. Það voru einnig sundbolir frá Speedo frá ca.5000kr. mæli með að kíkja þangað ef ykkur vantar sundbol, einnig hellingur af fötum úr td. Zöru og Vero Moda á klink.


Hef gaman af því þegar fólk hrósar blogginu mínu og hafi gaman að því lesa pistlana mína, en hef einnig fengið þessa setningu "Hvaaaað ætlaru að blogga um þetta eða? Haha". Alltaf jafn fyndið þegar fólk finnist eitthvað asnalegt sem maður er að gera bara afþví það er öðruvísi en geta svo ekki þagað um það, verða bara að dissa örlítið. Nátla sorglegt að sumir fái virkilega eitthvað út úr því að dissa aðra. "If you dont have anything nice to say, then dont say anything at all." Samt ekki misskilja mig, tók þetta ekkert inná mig en eins og ég hef sagt áður þá er rosalega þægilegt að blogga, ég get sagt það sem ég vil og fólk ræður því algjörlega hvort það vill lesa skrifin mín eða ekki.



En hvað með það, jólin nálgast :)


-hannaleam.




Thursday, December 11, 2014

Söknuður

Skellti mér í strætóferð eftir vinnu í Góða Hirðinn, vantaði hluti til að gera fullkomnu jólagjöfina. Þessi staður er alltaf jafn frábær! Fallegir munir og bækur á klink, love it. Þarna er hægt að finna hluti fyrir allt mögulegt og svo er ekkert mál að fríska uppá hlutina. Fann meðal annars bók sem mig er lengi búið að langa að lesa, "Úlfshjarta" eftir Stefán Mána (skrifaði m.a. Svartur á leik) á 400kr! Hún er vel farin en annars kostar ný kilja 2970kr hjá Forlaginu. Elska að kaupa á góðu verði og vita að það kostar mikið meira annarsstaðar. Keypti einu sinni mintugræna angoru peysu í kolaportinu á 700kr. Prófaði að googla merkið (J.Crew) og þá fann ég nkl eins peysu nema mín var með tölum að framan, sú peysa kostaði 17þúsun, score!

Mamma og ég 2ára.


Þótt að jólin séu yndislegur tími er hann þó stundum erfiður fyrir marga. Hugurinn reikar til ástvina sem búa í öðru landi eða til þeirra sem ekki er lengur á meðal manna. Í vinnuni í dag kom krakkahópur úr leikskóla og lék helgileik fyrir gamla fólkið, eftir það sungum við saman jólalög. Eitt barnanna var af asískum uppruna og ég og aðrir vorum sammála um hvað hún væri sæt, sérstaklega þar sem ég hafði reynsluna hoho. En í kjölfarið rifjuðust upp minningar frá því ég var barn og af mömmu. Ég myndi gefa hönd eða fót eða bæði til að eiga hana ennþá á lífi, sakna hennar alveg rosalega. Þótt það séu liðin 5 og bráðum 6 ár síðan hún dó fæ ég ennþá kökk í hálsinn þegar það kemur til tals að ég sé móðurlaus. Mér líður stundum ennþá eins og það hafi gerst í gær. Það er rosalega sárt að eiga ekki mömmu, hugsa um allt það sem aðrar stelpur eru að upplifa með móður sinni en það mun ég aldrei nokkurn tímann fá að upplifa. Aldrei mun ég eiga hana að þegar ég verð ólétt í fyrsta sinn og barnið mitt mun ekki eiga hana sem ömmu. Ég get alveg viðurkennt það að ég dauðöfunda ykkur hin sem eigið mömmu ykkar. Vil minna ykkur á það að þótt mamma ykkar geti verið ótrúlega óþolandi eða "ömurleg afþví hún vill sko ekki kaupa kjólinn sem mig langar í!!" (heyrði þetta einu sinni á ganginum í Borgó) eigiði bara eina mömmu og það mun engin önnur koma í staðinn fyrir hana. Hljóma kanski rosalega þunglyndisleg en án gríns, einn daginn verður hún ekki lengur til staðar fyrir þig og þá er eins gott að hafa notað tímann ykkar saman til fulls og eiga þar af leiðindum nóg af yndislegum minningum. Fyrir mig var þetta rosalega erfitt þar sem ég nýorðin 17ára, nýbúin með uppreisnartímabilið sem flestir hafa gengið í gegnum og leið eins og ég væri að kynnast mömmu í fyrsta skipti aðeins til að missa hana fyrir fullt og allt. Sem betur fer á ég yndislegan eiginmann sem er kletturinn minn og frábærar vinkonur sem gera allt fyrir mig. Er svo þakklát fyrir það eiga þau að þrátt fyrir allt sem ég hef gengið í gegnum.

Pointið með þessu öllu saman er bara að ég vil minna ykkur á að elska og vera góð við hvort annað, þú veist aldrei hvað gæti gerst á morgun.

-hannaleam.







Friday, November 21, 2014

33dagar í jólin!

Ég byrjaði í jólaskapinu í september! Það er rosalega snemmt fyrir mig sem hef ávallt viljað byrja að hlusta á jólalögin í desember en núna klæjar mig í puttana mig langar svo að fara skreyta. Er búin að kaupa og pakka inn flestar jólagjafirnar sem er rosalegur léttir, fínt að vera búin að öllu. Vaknaði í morgun og kveikti á jóladisknum hans Michael Buble, kláraði að pakka inn og merkja nokkra pakka. Eftir 10daga (1.des) ætla ég svo sannarlega að byrja að skreyta íbúðina, ah hvað mig hlakkar til. 


Mæti á kvöldvakt á eftir, svo er það vinnuhelgi hjá mér. Er einnig að fara í afmælispartý um helgina hjá Kareni Ívars. Vá hvað það er næs að hún býr í götunni fyrir ofan mig þannig ég get bara rölt í partýið. Skemmtileg helgi framundan!

-hannaleam.