Showing posts with label tískusýning. Show all posts
Showing posts with label tískusýning. Show all posts

Saturday, January 31, 2015

Æðisleg hátíð

Laugardaginn 31.janúar var Japanska hátíðin haldin í ellefta skipti í Háskóla Íslands. Sendiráð Japans og nemendur við japönsku brautina í HÍ skipuleggja hátíðina í sameiningu. Ótrúlega góð skemmtun sem nemendur skólans leggja sig mikið fram við að gera. Það var (og hefur held ég alltaf verið) ókeypis aðgangur. Gestum var boðið upp á að upplifa japanska menningu af ýmsum toga. Hægt var að smakka japanskan mat (sushi, eins mikið og þú vildir!), læra að skrifa nafnið sitt á japönsku og margt fleira. Er svo ánægð að hafa komist á hátíðina í ár, langar að hafa það sem svona hefð að fara alltaf en hef annars farið held ég þrisvar. Einn af mínum stærstu draumum er að ferðast til Japans. Það er eitthvað við menninguna hjá þeim sem heillar mig gífurlega, svo er ég líka mikill anime aðdáendi þannig það væri ægilega gaman að upplifa Japan&menninguna "for real" í staðinn fyrir að horfa á það í tölvunni.


Hérna eru nokkrar myndir frá hátíðinni:

Allskonar bæklingar um Japan

Það var hægt að prófa kimono
Flott plaköt um japanskan mat
Held ég væri orðin glorhungruð þegar þetta væri loksins orðið fullkomið hjá mér..

Fallega vinkona mín! Og frítt sushi, omnom

Hellingur af fólki / Guðrún&Gútti með nafnið sitt ritað á japönsku


Hérna er svo myndband af tískusýningunni:
(Ég tók upp og klippti)


-hannaleam.