Showing posts with label bíó. Show all posts
Showing posts with label bíó. Show all posts

Thursday, February 5, 2015

Núið

Náði loksins inná Fm957 og fékk fjóra miða á Kingsman - Secret Service. Sá trailerinn í bíó um daginn þegar var á "The Wedding Ringer" sem er btw. hilarious! og leist rosalega vel á. Er frekar dösuð eftir næturvakt og á að vinna aftur í núna næstu nótt en næ því miður ekkert að sofa fyrir þá vakt. Bauð auðvitað manninum og 2vinkonum mínum. Jii hlakka til að detta inní myndina.


 

Annars er langþráð afslöppunar helgi framundan, spa time! Ohh er svo ánægð að vera komin aftur með snjallsíma. Finnst td. ótrúlega þægilegt að geta verið með helling af bókum í vasanum. Er td. búin að vera bíða eftir að Borgarbókasafnið láti mig vita að síðustu tvær bækurnar í "The Southern Reach Trilogy" séu komnar og held það sé ekkert að fara gerast. Ég tók mig bara til og náði í bækurnar á netinu og voila! komnar í símann og klæjar í fingurgómana hvað ég er spennt að lesa þær. En mæli eindregið með allavega fyrstu bókinni, sjúklega spennandi, svona algjör "whaaaaat?" fílingur og þú getur ekki hætt að lesa. Svoldið svona mindfuck / sci-fi. Las bókina á Fiskidögum á Dalvík á síðasta ári, kláraði hana á 2 dögum? Ekki það að það hafi ekki verið neitt annað gera heldur notaði ég allan tímann sem ég var ekki að taka þátt í fjörinu í að lesa.


Annihilation (Southern Reach #1)
by Jeff VanderMeer


"Area X has been cut off from the rest of the continent for decades. Nature has reclaimed the last vestiges of human civilization. The first expedition returned with reports of a pristine, Edenic landscape; all the members of the second expedition committed suicide; the third expedition died in a hail of gunfire as its members turned on one another; the members of the eleventh expedition returned as shadows of their former selves, and within months of their return, all had died of aggressive cancer.

This is the twelfth expedition.

Their group is made up of four women: an anthropologist; a surveyor; a psychologist, the de facto leader; and our narrator, a biologist. Their mission is to map the terrain and collect specimens; to record all their observations, scientific and otherwise, of their surroundings and of one another; and, above all, to avoid being contaminated by Area X itself.

They arrive expecting the unexpected, and Area X delivers—they discover a massive topographic anomaly and life forms that surpass understanding—but it’s the surprises that came across the border with them, and the secrets the expedition members are keeping from one another, that change everything."

-Goodreads.



 -hannaleam.

Wednesday, November 12, 2014

The Hunger Games

Næst síðasta Hunger Games myndin er frumsýnd þann 21.nóv!

Þegar fyrsta myndin kom í bíó flýtti ég mér að lesa bækurnar, las semsagt allar 3 bækurnar á viku og fór svo á fyrstu myndina í bíó. Var rosalega ánægð með fyrstu myndina því það kom mér á óvart hvað nánast allt var eins og í bókinni. Það eina sem ég tók eitthvað eftir að væri öðruvísi var bara það að maður gat nátla ekki séð eða heyrt hvað karakterarnir voru að hugsa eins og í bókinni. Hef líka heyrt að fólk sem hafði ekki lesið bókina áttu erfitt með að skilja hvað var í gangi í myndinni. En allavega nú er loksins næsta myndin að koma og ég fer klárlega á hana í bíó. Finnst gaman að lesa bók og fara svo á myndina í bíó til að sjá svo hvort það sé mikill munur. Þegar ég las síðustu bókina var ég í smá sjokki afþví hún er svo brútal, er búin að hlakka mjög til að sjá hvernig þau fara að þessu í lokamyndunum. Er með algjört crush fyrir Josh Hutcherson og Jennifer Lawrence, finnst þau fullkomin!

Hérna er trailerinn:
 


Myndin var frumsýnd þann 10.nóv í London:
Jennifer Lawrence & Josh Hutcherson

Liam Hemsworth & Julianne Moore


Elizabeth Banks & Natalie Dormer

-hannaleam.