Showing posts with label vítamín. Show all posts
Showing posts with label vítamín. Show all posts

Wednesday, February 11, 2015

Undanfarið

Ég keypti mér Aloe Vera Vitamin E gelið um daginn frá Fruit of the Earth og hef borið á andlitið á mér kvölds og morgna. Ég er ekki frá því að húðin mín er miklu betri, það er svona heilbrigðara yfirlit á henni. Ein sem ég þekki benti mér á það að í öllum helstum augnkremum væri vítamín E og maður gæti alveg eins keypt svona gel og notað sem augnkrem. Ég fór og keypti mér brúsa við fyrsta tækifæri og nota gelið á augnsvæðið og á allt andlitið. Það er engin olía eða alkahól í gelinu og eftir að maður ber það á sig er það strax búið að smjúga inn í húðina og maður fær svona "ahh fresh" tilfinningu eftirá. Það stendur einmitt aftan á brúsanum "Quickly Absorbed - Non Sticky". Eftir gelið ber ég líka á mig andlitskremið sem ég er að nota þessa stundina. Brúsinn kostar um 1600krónur útí apóteki og sé fram á að eiga það heillengi þar sem maður þarf svo lítið í einu í andlitið. Annars er hægt að nota það við svo mörgu eins og gegn kláða, exemi, psoriasis, slit í húð, örum, á bólur, sólbruna og þurri húð. Hlakka til að sjá meiri mun á húðinni minni. How does vitamin E benefit skin?

Fruit of the Earth - Vitamin E moisturizing gel. Antioxidant skin therapy. Treat your skin to the wonderful anti-oxidant vitamin E plus aloe vera and glycerin. A soothing, cooling, moisturizing gel to combat dryness and irritated skin. Helps minimize tiny lines and wrinkles on face, hands, and body for smoother, healthier looking skin.



 Ég skellti mér í kolaportið síðustu helgi og vá, á öðrum hverjum bás voru stelpur á mínum aldri að selja ný og notuð föt af sér. Þegar ég var búin að labba þriðja ganginn var ég búin með peninginn sem ég ætlaði eyða, ég hugsaði með mér vá og ég er ekki einu sinni búin að skoða allt haha.

Allt sem ég keypti mér var ónotað (nema leðurjakkinn): grár leðurjakki, tvö svört "djammveski" sem auðvelt er að setja yfir öxlina og dansa með, svartan bol sem er gegnsær/blúnda að framan en síður með rennilás að aftan, svartan bol úr chiffon með kögur skrauti framan á, "gull" hálsmen og síðan svartan gegnsæjan kimono.

Allt þetta (2bolir, hálsmen, leðurjakki, kimono og 2 veski) fékk ég á 5000krónur takk fyrir! Ekki neitt fyrir allt þetta! Elska svona góð kaup.






Fékk bókaábendingu í dag, "The Red Tent". Bókin fjallar um Dinuh og eina móður hennar (nokkrar) sem heitir Leah, en ég er skýrð eftir þeirri Leuh. Mamma var frekar trúuð las oft biblíuna þannig hún valdi nafnið Hanna Lea úr biblíunni. Þykir mjög vænt um nafnið mitt því mamma gaf mér það.

The Red Tent written by Anita Diamant
"Her name is Dinah. In the Bible, her life is only hinted at in a brief and violent detour within the more familiar chapters of the Book of Genesis that are about her father, Jacob, and his dozen sons. Told in Dinah's voice, this novel reveals the traditions and turmoils of ancient womanhood--the world of the red tent. It begins with the story of her mothers--Leah, Rachel, Zilpah, and Bilhah--the four wives of Jacob. They love Dinah and give her gifts that sustain her through a hard-working youth, a calling to midwifery, and a new home in a foreign land. Dinah's story reaches out from a remarkable period of early history and creates an intimate connection with the past. Deeply affecting, The Red Tent combines rich storytelling with a valuable achievement in modern fiction: a new view of biblical women's society." - Goodreads.


Einnig eru til þættir: "Based on Anita Diamant's bestselling novel; the story of the twelve tribes of Israel is told through the eyes of Jacob's only daughter, Dinah." -IMDB 7,5/10.


 -hannaleam.