Það er búið að vera svo mikið að gera hjá undanfarið að ég hef því miður ekki haft tíma til að blogga. Er búin að vera svo upptekin að undirbúa afmælið mitt og núna síðasta föstudag rann dagurinn loksins upp. Ég á hins vegar afmæli 18.febrúar, eða á öskudaginn núna síðasta. Eyddi deginum i góðum félagsskap og þreif alla íbúðina hátt&látt, mega kósý. En afmælispartýið heppnaðist svo hrikalega vel, ég og stelpurnar skemmtum okkur konunglega. Svo er líka skemmtilegast að djamma á föstudögum því þá er öll helgin ennþá eftir.
Ég bauð vinkonum mínum uppá heimagerðar kínarúllur (gerði í fyrsta skipti og voru fullkomnar) sem voru mjög vinsælar enda kláraðust þær allar! Ferska ávexti (ananas, kiwi og jarðaber), kasjú hnetur, ætlaði að vera með marengs köku en það misheppnaðist eitthvað. Í staðinn braut ég niður marengsinn, setti í skál með slatta af rjóma og berjum, redda sér! Gleymdi því miður að taka myndir þannig lýsingarnar verða að duga. Svo hafði ég skipulagt nokkra leiki sem ég held að hafi bara slegið í gegn, enda brostu allir útaf eyrum. Þegar maður býður fólki til sín í partý finnst mér það skipta miklu máli að halda utan um hópinn og passa að allir séu að skemmta sér, hafa einhvað skipulag á veisluhöldunum. Svo var dansað, spjallað og hlegið.Var stressuð yfir því að það yrði eitthvað vesen afþví við vorum 10 í pínkulitlu íbúðinni minni en það gekk vel.
Svo fékk ég líka svo
fallegar gjafir! M.a. bleika ittala skál, svartan kjól með sverðlilju
munstri, 4naglalökk, pukka te & laust berja te,
varalit&augnskugga, rauða rós & lítinn smirnoff vodka, glös úr
ikea, eyrnalokka, ilmvatnsprufur, handmálaða mynd af kisu (partýkisi),
OLUNDA fiðrilda myndina úr ikea, sítrónu handburð frá Crabtree &
Evelyn o.s.frv. Er svo ánægð með allt!
Takk, takk, takk æðislega fyrir mig stelpur þetta var frábært kvöld! Er svo heppin þekkja svona æðislegar stelpur.
Daginn eftir afmælið bauð Ásta mér á íshokkí leik, Esja vs. Björninn. Esja vann! Vúhú!! (Veit samt ekkert um íshókkí haha).
![]() |
| Lipstick: Gosh - Boheme. |
-hannaleam.





























