Hérna eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga:
- Ekki lifa fyrir morgundaginn, eða þann næsta, lifðu í núinu. Njóttu þess að vera til.
- Vertu þakklát/ur fyrir allt sem þú átt. Þótt þú eigir ekki nýjustu skóna áttu í minnsta kosti fætur sem bera þig hvert sem þú villt fara og augu sem sjá.
- Lærðu að vera ein/n með sjálfri/um þér. Ef þú getur ekki notið þess að eiga stund með sjálfri/um þér afhverju ætti þá einhverjum öðrum að langa það?
- Þú átt bara einn líkama og þú verður að hugsa vel um hann. Hollt matarræði, einhverskonar hreyfing og góður svefn eru lykilatriði.
- Mundu að brosa. Það er svo mikilvægt að geta hlegið af hversdagsleikanum og vera ekki of alvarleg/ur.
- Stattu með sjálfri/um þér. Sjálfstraust er virkilega aðlaðandi eiginleiki, ekki vera feimin/n við að tjá skoðanir þínar og ekki hafa of miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst.
Það er mikil vinna að sinna hlutverkum okkar í daglegu lífi
en þau geta verið vinkona, maki, vinnufélagi, móðir, dóttir, leiðbeinandi
o.s.frv. þannig leyfum okkur að anda. Gerum okkur grein fyrir því að við erum
mannleg, við og allir aðrir geta gert mistök en lífið heldur alltaf áfram.
-hannaleam.


No comments:
Post a Comment