Jólin í ár voru yndisleg, er svo þakklát og ánægð með gjafirnar sem ég fékk. Svo sýnist mér flestir ánægðir með gjafirnar sem ég gaf. Ég fékk m.a. rúmföt, naglalökk, eldfastmót frá Rosendahl, skálar frá Rosendahl, 5000kr gjafabréf í kringluna, hitakrús, Mac varalit - Amorous, kjól úr H&M, tekönnu með síu, trefil, bolakjól úr H&M og margt fleira fallegt.
Á aðfangadag var þriggja rétta dinner.
Humarsúpa í forrétt, lambahryggur í aðalrétt
og sítrónu frómas með rjóma í desert, mmmm!
Á aðfangadag ætluðum við hjúin að skjótast út í búð en þá kom í ljós að bílinn vildi ekki fara í gang, eða jú hann fór í gang en drap svo strax á sér aftur. Yndislegt alveg hreint! Jólin og svo helgi þannig ég get fyrst byrjað að hringja á verkstæði í fyrramálið.
Okkur var boðið í matarboð á jóladag hjá yndislegri vinkonu og afþví bílinn var bilaður sótti hún okkur og skutlaði okkur svo heim um kvöldið. Hjá henni fengum við síld með rúgbrauði, hangikjöt og ris ala mande. Þetta var í fyrsta skipti held ég sem ég tek þátt í svona "ris ala mande leik" og ég vann! Fékk möndluna og flottan vinning. Eftir matinn var kveikt í eldstæðinu og spilað alias, æðislegur dagur með góðu fólki.
Var að klára bókina Dance, dance, dance eftir Haruki Murakami. "High-class call girls billed to Mastercard. A psychic 13-year-old dropout with a passion for Talking Heads. A hunky matinee idol doomed to play dentists and teachers. A one-armed beach-combing poet, an uptight hotel clerk and one very bemused narrator caught in the web of advanced capitalist mayhem. Combine this offbeat cast of characters with Murakami's idiosyncratic prose and out comes Dance Dance Dance." Er staðráðin í því að lesa allt eftir þennan mann, snillingur. Allar bækurnar sem ég hef lesið so far eru svo súrrealískar og hann býr til svo fallega heima en einnig drungalega. Bækurnar hans fá mann til að hugsa og sitja virkilega eftir.
Hlakka svo til áramótanna, horfa á fréttaannállinn 2014, áramótaskaupið og skála með yndislegu fólki.
-hannaleam.


















