Sunday, November 30, 2014

Fyrsti í aðventu

Fór í tvö afmæli um helgina, afmælispartýið hennar Ástu Maríu á föstudaginn og afmæliveislan hans Arnars Elí í dag. Bæði rosalega skemmtileg, takk aftur fyrir mig! Svo gaman að gefa Arnar litla pakka og horfa á hann basla við að opna hann, litla krútt. Arnar átti 2ára afmæli þann 19.nóv þannig ég gaf honum bókina "Ég er tveggja ára". Hann ætlar að verða eins og ég, bókaormur!

Ein síðan á föstudaginn <3

Afmælisveislan hans Arnars <3

 Kláraði bókina "Kafka on shore" í dag, eftir japanska höfundinn Haruki Murakami. Hef einnig lesið "Sputnik Sweetheart" sem er líka eftir sama höfund. Ótrúlega góðar bækur sem sitja svo sannarlega eftir í huganum, rann fljótt í gegnum þær enda ekki hægt að stoppa. Nú er bara að næla sér í aðra bók eftir hann á bóksafninu.

"Kafka on the Shore, a tour de force of metaphysical reality, is powered by two remarkable characters: a teenage boy, Kafka Tamura, who runs away from home either to escape a gruesome oedipal prophecy or to search for his long-missing mother and sister; and an aging simpleton called Nakata, who never recovered from a wartime affliction and now is drawn toward Kafka for reasons that, like the most basic activities of daily life, he cannot fathom. Their odyssey, as mysterious to them as it is to us, is enriched throughout by vivid accomplices and mesmerizing events. Cats and people carry on conversations, a ghostlike pimp employs a Hegel-quoting prostitute, a forest harbors soldiers apparently unaged since World War II, and rainstorms of fish (and worse) fall from the sky. There is a brutal murder, with the identity of both victim and perpetrator a riddle - yet this, along with everything else, is eventually answered, just as the entwined destinies of Kafka and Nakata are gradually revealed, with one escaping his fate entirely and the other given a fresh start on his own."

"Sputnik Sweetheart: Sumire is in love with a woman seventeen years her senior. But whereas Miu is glamorous and successful, Sumire is an aspiring writer who dresses in an oversized second-hand coat and heavy boots like a character in a Kerouac novel. Sumire spends hours on the phone talking to her best friend K about the big questions in life: what is sexual desire, and should she ever tell Miu how she feels for her? Meanwhile K wonders whether he should confess his own unrequited love for Sumire. Then, a desperate Miu calls from a small Greek island: Sumire has mysteriously vanished..."





Jæja nú ætla ég að drattast á fætur og laumast til að skreyta svolítið, jólajólajólaaa! En engin jólatónlist. Er svo mikið að fíla þetta í augnablikinu...


-hannaleam. 



 

Wednesday, November 26, 2014

Allskonar Jóla DIY

Það er svo gaman að föndra en það vantar oft hugmyndir:

Mér sjálfri finnst skemmtilgast að föndra eitthvað sem er easypeasy, eiginlega ekkert vesen og þarf ekki helling af dóti til að búa til.








og meira hér








































-hannaleam.

 

Tuesday, November 25, 2014

A.M.A. 2014

American Music Awards voru haldin þann 23.nóv í LA.

Hérna er listi yfir þau sem voru tilnefnd og þau sem unnu. 






Hérna eru nokkur atriði frá hátíðinni:

 

 

Hérna er góð grein um hátíðina í heild sinni inná RollingStones

Og myndir:





 -hannaleam.


Monday, November 24, 2014

Helgin

Þá er æðisleg helgi að baki. Mér og Sigvalda var boðið í afmælispartý hjá Kareni Ívars sem var hreint út sagt fábær skemmtun! Ótrúlega gaman að hitta stelpurnar sem maður hafði ekki hitt lengi. Takk aftur fyrir mig <3

Þykir óendalega vænt um þessa <3

Var að horfa á Episode 1 af "Stephen Fry: Out There", þættir sem allir ættu að horfa ár. "Stephen Fry: Out There is a two-part 2013 television documentary in which Stephen Fry explores attitudes to homosexuality and the lives of gay people in different parts of the globe"


Er búin að vera að hlusta á þetta lag á repeat:

 
-hannaleam.



Friday, November 21, 2014

33dagar í jólin!

Ég byrjaði í jólaskapinu í september! Það er rosalega snemmt fyrir mig sem hef ávallt viljað byrja að hlusta á jólalögin í desember en núna klæjar mig í puttana mig langar svo að fara skreyta. Er búin að kaupa og pakka inn flestar jólagjafirnar sem er rosalegur léttir, fínt að vera búin að öllu. Vaknaði í morgun og kveikti á jóladisknum hans Michael Buble, kláraði að pakka inn og merkja nokkra pakka. Eftir 10daga (1.des) ætla ég svo sannarlega að byrja að skreyta íbúðina, ah hvað mig hlakkar til. 


Mæti á kvöldvakt á eftir, svo er það vinnuhelgi hjá mér. Er einnig að fara í afmælispartý um helgina hjá Kareni Ívars. Vá hvað það er næs að hún býr í götunni fyrir ofan mig þannig ég get bara rölt í partýið. Skemmtileg helgi framundan!

-hannaleam.

Thursday, November 20, 2014

Krónuleikur

Vaknaði seint í morgun og staulaðist á fætur. Eldaði mér hafragraut og settist svo niður til að lesa blöðin. Í grafarvogsblaðinu rakst ég á ömurlega grein! Foldasafnið í Grafarvogskirkju er að flytja í stærra húsnæði sem er gamla World Class í Spönginni. Ohh hvað mér finnst það ömurlegt! Það tekur mig svona 2mín að labba niður í Foldasafn og mér finnst æðislegt að hanga þar. Skoða nýjustu tímaritin og fá lánaðar bækur. Þannig ég er strax farin að syrgja bókasafnsins míns. Ég og maðurinn minn rekum bara einn bíl þannig ég get ekki lengur kíkt hvenar sem er á bókasafnð þegar mér hentar, ugh leiðinlega frétt dagsins.

Annars kom Ásta vinkona mín rétt fyrir hádegi og fórum út, aðeins að stússast. Stoppuðum við í Krónunni þar sem ég ætlaði að kaupa mér svona 10 ávexti í poka tilboð. Þar tók ég eftir leik sem Garnier og Krónan er með. Þú kaupir semsagt einhverja vöru frá Garnier festir kvittunina á þáttökuseðilinn og skellir honum svo í kassan í versluninni. Þótt mig vantar í rauninni ekki neitt valdi ég mér Garnier Micellar Cleansing Water einungis til að taka þátt í leiknum. Var búin að sjá annan bloggara hrósa þessari vöru þannig mig langaði til að prófa. Prófaði einnig að googla vöruna og hún fær góða dóma inná MakeUpAlley. Mæli rosalega með þessari síðu, fólk ætti að leggja það í vana sinn að lesa um vörurnar áður en þær kaupir þær.



Vinningarnir eru 100þúsund króna gjafabréf í Smáralind, 30þúsund króna gjafabréf í Krónunni og (held ég skilji þetta rétt) 30 gjafaöskjur frá Garnier. Dregið verður út 15.des. Þá er bara að bíða og vona.

Í kvöld ætla ég að kíkja til Jóhönnu vinkonu minnar. Höfum ákveðið að skrifa saman jólakort, ohh hvað mig hlakkar til að eyða tíma með henni. Spjalla, hlæja, drekka te og hlusta kanski á jólalög. Svo best.

-hannaleam.

Wednesday, November 19, 2014

Tónlistin

Ég myndi kalla mig tónlistar alætu. Ég fíla bara svo rosalega mikið af allskonar tónlist. Hef aldrei skilið það hvernig fólk getur td. fílað bara rokk eða bara hiphop. Hvað þá ef það fílar bara einn artista og hlustar stanslaust á sama diskinn, ekki myndi ég meika það. Elska að finna ný eða gömul lög á youtube. Veit ekki hvað það er sem lætur mig fíla lagið, i just do (góð pæling). Þótt ég hlusti oftast á Fm957 í bílnum, hlusta ég ekkert endilega á þessi lög í tölvunni. Eða skiljiði hvað ég meina? Finnst oft fólk halda að maður eigi engan tónlistarsmekk einungis því maður stillir á fm í bílnum eða við heimilisþrifin. Hef oft lent í því að uppgvötva eitthvað lag í bíómynd og ég verð að finna það í tölvunni svo ég geti hlustað á það á repeat. Næ líka í heilt album með lögum úr bíómynd. Síðast var það td. Divergent albumið, ótrúlega góð lög voru notuð í þeirri mynd.


Tove Lo aka Ebba Tove Elsa Nilson fædd 1987 er sænk söngkona sem varð fræg fyrir lagið sitt "Habits (Stay High)" sem er búið að vera nonstop á fm. Ekki komið nóg haha? Hún var að gefa út nýtt album sem heitir "Queen of the Clouds" sem inniheldur lagið "Talking Body". Rakst á það rétt áðan, tónlistin og textinn hreif mig strax. Njótið!



Er búin að vera vinna síðan á sunnudaginn og á morgun á ég loksins frídag! Vá hvað mig hlakkar til að sofa út, taka íbúðina í gegn og njóta dagsins. Það þarf aaaðeins að slappa af, stundum finnst mér stressið vera að kæfa mig.

-hannaleam.