Friday, November 14, 2014

F&F

Kíkti í Kringluna í gærkvöldi og stoppaði við í Hagkaup. Vávává hvað F&F deildin er flott! Endalaust af fallegum vörum, þar geta sko allir fundið eitthvað við sitt hæfi. F&F vörumerkið er fatalína sem tilheyrir Tesco, F&F stendur fyrir Florence (kvenmenn) og Fred (karlmenn). Mér finnst líka verðin ekkert rosalega há miða við aðrar búðir. Mæli eindregið með því að kíkja við.

F&F Hooded Duffle Coat

Það var mikið af flottum yfirhöfnum og ég koféll fyrir einni sem ég varð að máta! Ég mun bara eiga hana í hausnum haha. Hún kostar 9990kr en £39.00 í Bretlandi sem er 7638kr þannig það væri aðeins ódýrara að kaupa hana úti.

Afsaka léleg gæði


Þessari búð mun ég bæta inní kringlurúntinn minn.

-hannaleam.



Thursday, November 13, 2014

Tax Free Dagar!

Allar snyrtivörur, allur fatnaður, allt jólaskraut, öll leiföng, allar bækur og öll búsháhöld eru án virðisaukaskatts (20,32%) dagana 13. - 17. nóvember í Hagkaup.

Skellið ykkur og klárið nokkrar jólagjafir nú eða gefið ykkur sjálf.

Hérna er listi yfir snyrtivörum sem ég væri til í að næla mér í:


 1. L'Oréal - Sublime Glow Seansational Cleansing Oil. 2. Maybelline - Color Elixir - Rasberry Rapsody. 3. L'Oréal - Voliminous Miss Manga Mascara. 4. Maybelline - Brow Drama. 5. L'Oréal - Magic Lumi Primer. 6. L'Oréal - CC Cream Anti Redness. 7. Maybelline - Color Drama Lipstick - Berry Much / Minimalist. 8. Sally Hansen - Complete Salon Manicure. 9. Maybelline - Color Sensational - Hollywood Red. 10. Real Techniques - Base Shadow Brush. 11. L'Oréal - Super Liner Perfect Slim. 12. Artdeco - Ultra Rich Night Repair Cream for Nails. 13. Sally Hansen - Nails & Cuticles Hand Creme. 14. Neutrogena - Oil Free Acne Wash. 15. L'Oréal - Million Lashes So Couture. 16. Maybelline - 24 Hour Color Tattoo. 17. Real Techniques -  Contour Brush.


-hannaleam.

Wednesday, November 12, 2014

The Hunger Games

Næst síðasta Hunger Games myndin er frumsýnd þann 21.nóv!

Þegar fyrsta myndin kom í bíó flýtti ég mér að lesa bækurnar, las semsagt allar 3 bækurnar á viku og fór svo á fyrstu myndina í bíó. Var rosalega ánægð með fyrstu myndina því það kom mér á óvart hvað nánast allt var eins og í bókinni. Það eina sem ég tók eitthvað eftir að væri öðruvísi var bara það að maður gat nátla ekki séð eða heyrt hvað karakterarnir voru að hugsa eins og í bókinni. Hef líka heyrt að fólk sem hafði ekki lesið bókina áttu erfitt með að skilja hvað var í gangi í myndinni. En allavega nú er loksins næsta myndin að koma og ég fer klárlega á hana í bíó. Finnst gaman að lesa bók og fara svo á myndina í bíó til að sjá svo hvort það sé mikill munur. Þegar ég las síðustu bókina var ég í smá sjokki afþví hún er svo brútal, er búin að hlakka mjög til að sjá hvernig þau fara að þessu í lokamyndunum. Er með algjört crush fyrir Josh Hutcherson og Jennifer Lawrence, finnst þau fullkomin!

Hérna er trailerinn:
 


Myndin var frumsýnd þann 10.nóv í London:
Jennifer Lawrence & Josh Hutcherson

Liam Hemsworth & Julianne Moore


Elizabeth Banks & Natalie Dormer

-hannaleam.

Tuesday, November 11, 2014

JólaJóla

Núna eru einungis 43 dagar í jólin og mig hlakkar svo til! Klæjar í puttana, mig langar svo að byrja að skreyta. Er búin að kaupa nánast allar jólagjafirnar og vá hvað það er næs að vera í engu stressi. Nú get ég haft það kósý í desember, föndrað og pakkað inn jólagjöfum við góða jólatónlist. Hef aldrei verið jafn mikið jólabarn og núna. Hef alltaf viljað byrja á jólatónlistinni í fyrsta lagi 1.des en í ár er ég alveg rosalega spennt. Held líka að málið sé það að þetta er í fyrsta sinn sem ég held uppá jólin í minni eigin íbúð. Ég er ein af þeim sem hlustar vel á vinkonur mínar allt árið og ef þær nefna einhvað sérstakt sem þeim langar í reyni ég að leggja það vel á minnið fyrir jólin. Það er vanalega ekkert mál fyrir mig að kaupa jólagjafir handa ástvinum mínum og finnst það bara ánægjulegt.  



Ætla að deila með ykkur nokkur ráðum: 

Nr. 1 - 2 og 3 er að vera vel skipulögð í kringum jólin. Best er að klára gjafirnar sem fyrst svo maður hafi nú tíma til að njóta hátíðarinnar. Einnig er gott að fylgjast með öllum tilboðum, þannig er hægt að kaupa td. eitthvað sem vinkonu manns langaði svo í, á góðu verði. Gjafabréf er skotheld gjöf, það getur td. verið gjafabréf í nudd, í kringluna, út að borða eða í leikhús. Einnig er sniðugt að gefa ostakörfur og eða vín fyrir þá sem að eiga allt. Endilega munið líka eftir því að biðja um skilamiða á gjafirnar. Ef þið hafið ekki mikið á milli handana finnst mér alltaf jafn flott að gefa mynd í ramma, td. af ykkur saman. Svo er einnig hægt að skrifa eitthvað orðatiltæki, inspo, quote eða jafnvel teikna mynd og setja í rammann.

Það er oft sem pökkunarborðið í kringlunni er troðið, finnst óþægilegt að pakka inn í svona miklu áreiti. Mæli með því að taka bara gjafapappírinn og böndin með þér heim, þar geturu pakkað í friði með nóg af plássi. Svo gæti ég haldð endalaust áfram en þetta er komið gott.

Vona að þetta minnki jólastressið ykkar.


-hannaleam.

Monday, November 10, 2014

*Tomorrowland*

Fyrir nokkrum árum síðan uppgvötvaði ég Tomorrowland á youtube. Tomorrowland er tónlistarhátið sem er haldin í borginni "Boom" í Belgíu. Hún var fyrst haldin árið 2005 og í sumar var hún haldin í 10skipti þar sem meira en 400þúsund manns mættu og dönsuðu sig máttlaus. Síðustu 9ár hefur hátíðin verið haldin yfir eina helgi en í ár var hún haldin yfir tvær helgar til að komast til móts við þennan heljarinnar fjölda af fólki. Stjórnendur hátíðarinnar vildu einnig bæta við annarri helgi til að gefa fleiri aðdáendum tækifæri á að komast á hátíðina. Í ár voru 360000miðar í boði en þeir seldust upp á innan við klukktíma!


Tónlistin sem spiluð er á hátíðinni einkennist af EDM aka Electronic dance music og eru það flestir af frægustu Dj'um heims sem mæta og trylla liðið. Meðal þeirra eru Kaskade, Alesso, Armin Van Buuren, Eric Prydz, Tiesto, Skrillex, Nicky Romero, Afrojack, Avicii, Martin Garrix og David Guetta.


Shii síðan ég sá fyrstu mynböndin hefur mig langað til þess að fara!
Klárlega á mínum "bucket lista".


Eftir hverja hátíð er búin til "Tomorrowland AfterMovie" sem við hin sem erum föst heima bíðum alltaf spennt eftir. Myndin fór hinsvegar eitthvað framhjá mér núna því það er mánuður síðan hún kom á youtube en hún er æææði! Fæ þvílíkan hroll, njótið! <3



Hérna eru svo playlistar yfir lögum sem voru vinsæl í ár



-hannaleam.

Saturday, November 8, 2014

Jólahúfan

Eins og ég greindi frá í síðasta bloggi fór ég og hitti Jóhönnu vinkonu mína niðrí bæ í gær. Fengum okkur kvöldmat (Fiskisúpa Jörundar -æðislega góð!), kíktum síðan yfir á English Pub og fengum okkur frían Tuborg jólabjór. Því miður fór skrúðgangan alveg framhjá mér en ætla klárlega að mæta í hana á  næsta ári! Það var hellingur af liði með Tuborg jólahúfur, bindi, eyrnaskjól og aðra aukahluti fyrir utan pöbbinn. Ég dauðöfundaði þau, vá hvað mig langaði í svona fallega bláa jólahúfu! Kíkti á barinn og spurði og hvort þau ættu nokkuð einhverjar jólahúfur eftir en því miður voru þær búnar. Nöldraði svoleiðis yfir því hvað mig langaði í húfu og var að lokum búin að gefast upp. Hún Jóhanna mín reyndi að hughreysta mig og sagði mér að hugsa bara "Mig langar í svona húfu, ég mun eignast svona húfu" eða eitthvað í þá áttina. Stay positive, you know. Allavega, kíktum svo út, ætluðum að fá okkur ferskt loft og kíkja svo eitthvert annað. Það labbar upp að mér náungi og spyr um eld þannig ég prófa að spyrja hann hvort hann eigi þá nokkuð auka jólahúfu? NEI SKO hann réttir mér húfuna sína og segir að ég megi eiga hana. Vá hvað hann veit ekki hvað hann gerði mig hamingjusama! (Þarf lítið til að gera mig glaða). Þá loksins gat ég tekið þátt í söngnum með bros á vör " Jólabjór, jólabjór, trallallallaaaaa". Þetta var hápunktur kvöldsins, ég fékk jólahúfu! Gleðifrétt helgarinnar, klárlega! Fórum svo yfir á Hressó þar sem við hittum mikið af skemmtilegu fólki og fólk sem var ekki eins skemmtilegt, en því var bara "shúað" burt. Tel mig vera frekar góða í því.

Yndislegt kvöld í alla staði <3



-hannaleam.
 


Friday, November 7, 2014

Rósa frænka

Hresstist við það að mæta á morgunvakt í dag eftir 4 daga veikindi. Ég held að þetta hafi tengst blæðingunum mínum. Síðustu 2 skipti plús núna hef ég fengið hita þegar Rósa frænka kemur í heimsókn. Rosalega furðulegt! Hef prófað að googla það en það eru margar stelpur sem hafa lent í þessu en það eru einnig margar ástæður fyrir því. Skipti nýverið úr Microgyn sem ég hafði verið á í 7ár yfir í Mercilon sem er með minnstu hormónunum. Vinkonur mínar höfðu sagt mér að það væri óhollt að vera svona lengi á sömu pillunni en heimilislæknirinn sagði að það væri bull. Ákvað samt að skipta yfir í Mercilon. Er búin að vera á henni í 3mánuði núna. Hef upplifað hita, meiri túrverki og eymsli í brjóstum. Æðislegt að vera kvenamaður! Endilega látið mig vita ef þið kannist eitthvað við þetta. Sumum finnst kanski óviðeigandi að ég sé að blogga um eitthvað svona persónulegt en við stelpur förum allar á túr og þetta ætti ekki að vera eitthvað feimnismál.



Í kvöld er ég að fara niður í bæ og borða með Jóhönnu vinkonu minni. Er með smá surprise fyrir hana, alltaf gaman að gleðja  <3 Mæli með að þið kíkið á English Pub! Á slaginu 20:59 er frír Tuborg Jólabjór í eina mínútu!



Sjáumst í jólaskapinu,

-hannaleam.