Tuesday, December 23, 2014

Þorláksmessa

Deginum var eytt með kærri vinkonu og pappakassanum hennar. Hún vinkona mín er svo fyndin, gerir allt á síðustu stundu þannig henni var aðstoðað með jólainnkaupin. Kíkti við í MOA í Smáralindinni og mamamia! þar er heill veggur af allskonar smörtum hárböndum. Stalst til að kaupa handa mér í skóinn, stóðst ekki mátið. Nú þegar ég er komin með svona stutt hár finnst mér gaman að geta notað öll þessi hárksraut sem eru í boði, það var eitthvað svo mikið vesen með þetta síða hár.



Rakst á þessa skó á facebook og vá hvað mig langar í þá! Googlaði svo betri mynd og voila! Það er hægt að fá derhúfu og tösku líka! Langar í allt settið haha. Er nátla algjör crazycatlady, það má. Á kött sem heitir Depill og er búin að eiga hann síðan ég var 8 ára og hann er 14 ára í dag svo á ég engin systkini þannig þetta er eins og bróðir minn.

Skórnir fást í Focus á 14995kr.


Á eftir verður jólatréið skreytt og pökkunum komið fyrir undir tréið svo er aðfangadagur á morgun! Trúi þessu ekki, hvert fór tíminn? Hlakka svo til að elda með manninum og opna pakkana eftir matinn. Kósý jólastund.





Gleðileg Jól elskurnar og munið
að flýta ykkur hægt!


-hannaleam. 

 

Thursday, December 18, 2014

Ný klipping!

Loksins, loksins, loksins fékk hárið að fjúka!

Var komin með nóg af hárinu mínu þar sem það flæktist við minnstu hreyfingu, enda svo hrikalega fínt. Ég var svo heppin að eiga gjafabréf á Sjoppuna en annars kostar klipping þar 6900kr og finnst það bara mjög sanngjarnt verð fyrir svona góða þjónustu! Sjoppan er staðsett "á laugarveginum", Bankastræti 14 fyrir ofan Subway. Var svo heppin að fá tíma hjá henni Ólöfu Sunnu en hún er frábær, bæði þægileg í framkomu og svo rosalega klár í að klippa hár.

FYRIR:
Aflitaðir endar / ombre / dipdye




EFTIR:
Lob! (Long Bob)



Er hæstánægð, takk fyrir mig!

-hannaleam. 


 

Wednesday, December 17, 2014

7dagar í jólin!

Tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða! Núna eru bara 7 dagar í jólin og vá hvað það er notalegt að vera löngu búin að öllu. Varð veik aftur síðasta sunnudag, vaknaði hress og kát og var svo komin með hita um kvöldið, yndislegt. Er búin að liggja orkulaus heima hjá mér að horfa á bíómynd eftir bíómynd. Mæli með nokkrum sem ég horfði á: "Edge of Tomorrow", "Horns" og "Hachiko: A Dog's Tale", grét þvílíkt yfir síðustu myndinni. Á tíma hjá lækni á morgun og vonandi getur hann gefið mér einhverjar útskýringar á þessum veikindum, ekki eðlilegt að fá hita 1 til 2 í mánuði.

Edge of Tomorrow, Horns og Haciko: A Dog's Tale.

 Á morgun á ég líka tíma í... klippingu! Vúhú, er sko búin að bíða spennt! Meira en helmingurinn af hárinu mínu fær að fjúka og það verður svo mikið frelsi. Get samt alveg garanterað það að ég mun væla yfir því eftir svona viku, en það er í lagi. Held ég muni gera þetta framvegis, safna í 4 ár og klippa svo allt af og byrja svo aftur að safna oog klippa allt af, you get it. Reyni að skella inn mynd umleið og ég get.


Komst loksins aðeins út úr húsi í dag (enda búin að vera föst inni síðan á sunnudaginn) og er þessi snjór eitthvað grín? Fæ alltaf lagið "Winter Wonderland" úr Happy Feet á heilann þegar ég sé allan þennan snjó. Aðstoðaði vinkonu mína við jólainnkaup og kíktum svo við í Korpu Outlet, þar fann ég sundbol á 2500kr frá Arena. Heavý sátt enda búin að leita mér að sundbol lengi. Það voru einnig sundbolir frá Speedo frá ca.5000kr. mæli með að kíkja þangað ef ykkur vantar sundbol, einnig hellingur af fötum úr td. Zöru og Vero Moda á klink.


Hef gaman af því þegar fólk hrósar blogginu mínu og hafi gaman að því lesa pistlana mína, en hef einnig fengið þessa setningu "Hvaaaað ætlaru að blogga um þetta eða? Haha". Alltaf jafn fyndið þegar fólk finnist eitthvað asnalegt sem maður er að gera bara afþví það er öðruvísi en geta svo ekki þagað um það, verða bara að dissa örlítið. Nátla sorglegt að sumir fái virkilega eitthvað út úr því að dissa aðra. "If you dont have anything nice to say, then dont say anything at all." Samt ekki misskilja mig, tók þetta ekkert inná mig en eins og ég hef sagt áður þá er rosalega þægilegt að blogga, ég get sagt það sem ég vil og fólk ræður því algjörlega hvort það vill lesa skrifin mín eða ekki.



En hvað með það, jólin nálgast :)


-hannaleam.




Thursday, December 11, 2014

Söknuður

Skellti mér í strætóferð eftir vinnu í Góða Hirðinn, vantaði hluti til að gera fullkomnu jólagjöfina. Þessi staður er alltaf jafn frábær! Fallegir munir og bækur á klink, love it. Þarna er hægt að finna hluti fyrir allt mögulegt og svo er ekkert mál að fríska uppá hlutina. Fann meðal annars bók sem mig er lengi búið að langa að lesa, "Úlfshjarta" eftir Stefán Mána (skrifaði m.a. Svartur á leik) á 400kr! Hún er vel farin en annars kostar ný kilja 2970kr hjá Forlaginu. Elska að kaupa á góðu verði og vita að það kostar mikið meira annarsstaðar. Keypti einu sinni mintugræna angoru peysu í kolaportinu á 700kr. Prófaði að googla merkið (J.Crew) og þá fann ég nkl eins peysu nema mín var með tölum að framan, sú peysa kostaði 17þúsun, score!

Mamma og ég 2ára.


Þótt að jólin séu yndislegur tími er hann þó stundum erfiður fyrir marga. Hugurinn reikar til ástvina sem búa í öðru landi eða til þeirra sem ekki er lengur á meðal manna. Í vinnuni í dag kom krakkahópur úr leikskóla og lék helgileik fyrir gamla fólkið, eftir það sungum við saman jólalög. Eitt barnanna var af asískum uppruna og ég og aðrir vorum sammála um hvað hún væri sæt, sérstaklega þar sem ég hafði reynsluna hoho. En í kjölfarið rifjuðust upp minningar frá því ég var barn og af mömmu. Ég myndi gefa hönd eða fót eða bæði til að eiga hana ennþá á lífi, sakna hennar alveg rosalega. Þótt það séu liðin 5 og bráðum 6 ár síðan hún dó fæ ég ennþá kökk í hálsinn þegar það kemur til tals að ég sé móðurlaus. Mér líður stundum ennþá eins og það hafi gerst í gær. Það er rosalega sárt að eiga ekki mömmu, hugsa um allt það sem aðrar stelpur eru að upplifa með móður sinni en það mun ég aldrei nokkurn tímann fá að upplifa. Aldrei mun ég eiga hana að þegar ég verð ólétt í fyrsta sinn og barnið mitt mun ekki eiga hana sem ömmu. Ég get alveg viðurkennt það að ég dauðöfunda ykkur hin sem eigið mömmu ykkar. Vil minna ykkur á það að þótt mamma ykkar geti verið ótrúlega óþolandi eða "ömurleg afþví hún vill sko ekki kaupa kjólinn sem mig langar í!!" (heyrði þetta einu sinni á ganginum í Borgó) eigiði bara eina mömmu og það mun engin önnur koma í staðinn fyrir hana. Hljóma kanski rosalega þunglyndisleg en án gríns, einn daginn verður hún ekki lengur til staðar fyrir þig og þá er eins gott að hafa notað tímann ykkar saman til fulls og eiga þar af leiðindum nóg af yndislegum minningum. Fyrir mig var þetta rosalega erfitt þar sem ég nýorðin 17ára, nýbúin með uppreisnartímabilið sem flestir hafa gengið í gegnum og leið eins og ég væri að kynnast mömmu í fyrsta skipti aðeins til að missa hana fyrir fullt og allt. Sem betur fer á ég yndislegan eiginmann sem er kletturinn minn og frábærar vinkonur sem gera allt fyrir mig. Er svo þakklát fyrir það eiga þau að þrátt fyrir allt sem ég hef gengið í gegnum.

Pointið með þessu öllu saman er bara að ég vil minna ykkur á að elska og vera góð við hvort annað, þú veist aldrei hvað gæti gerst á morgun.

-hannaleam.







Monday, December 8, 2014

Svefndagur

Kom heim í morgun, dauðfegin að vera loksins búin með þessar þrjár næturvaktir. Sofnaði ekki fyrr en kl11 og vaknaði kl17, ekkert smá kósý að hanga inni þegar það er svona veður úti. Langar að baka..

Er alveg ógurlega spennt yfir því að fara í klippingu og klippa mig stutthærða, held ég fari í smá spennufall eftirá haha. Steingleymdi að segja frá því í síðasta bloggi að klippingin sem mig langar í kallast "The Lob" aka Long Bob. The Lob er semsagt aðeins síðari en þessi venjulegi bob. Er búin að vera að liggja yfir myndum og mynböndum og verð bara meira og meira ástfangin! Elska að gera eitthvað nýtt við hárið á mér. Þetta er eitt af því fáa sem maður getur gert hvað sem er við og það vex aftur!



Ég mæli með The Beauty Department! Kíki reglulega inná síðuna og fæ allskonar hugmyndir varðandi hár, tísku og snyrtivörur. (Ákvað td. að klippa mig þegar ég las greinina um Lob, ást við fyrstu sýn!)

Fór á bókasafnið á laugardaginn, elska að fara á bókasafnið og hanga þar í marga klukkutíma. Fékk að láni þrjár aðrar bækur eftir Haruki Murakami, er alveg hugfangin af bókunum hans. Markmiðið er að lesa allt sem hann hefur skrifað. Er mjög gjörn á að gera þetta, sérstaklega með leikara. Ef ég er mjög hrifin af ákveðnum leikara langar mig til þess að sjá allar myndirnar með honum eða henni. Síðast var það td. Juno Temple, hún er æðisleg.





-hannaleam.





Saturday, December 6, 2014

Hársagan

Árin 2010 til 2014 hef ég verið að safna í sítt hár en er officially komin með rosa mikið leið. Það er svo mikil vinna að vera með sítt hár! Reyndar líka að vera með stutt en er komin með nóg af síðu hári í bili.. Langaði til þess að deila með ykkur hvað ég gerði til þess að síkka hárið mitt. Veit í rauninni ekki hvort það hafi endilega virkað en ég held það hafi nú gert eitthvað gagn.


1.Taka hárkúr:
L-Systín og DL-Metíónín eru amínósýrur sem innihalda brennistein, en hann er einkar mikilvægur fyrir hárið. Lesitín, inósítól og kólín eru nauðsynleg efni fyrir heilbrigðan hárvöxt. Skortur getur leitt til hárloss. B-vítamínin, PABA, bíótín og fólínsýra eru hárinu nauðsynleg. Ýmislegt eyðir þessum vítamínum úr líkamanum eða kemur í veg fyrir fulla virkni þeirra. Má þar nefna reykingar, feitan mat, áfengi, sum lyf og streitu og ofneyslu á hvítum sykri, svo að nokkuð sé upp talið. Þörf er á járni til myndunar blóðrauða sem flytur súrefni til allra fruma líkamans, því er það nauðsynlegt fyrir heilbrigðan hárvöxt. Kelp er þari sem inniheldur steinefni og hefur lengi verið notaður fyrir hárið. Auk þess eru sink og önnur steinefni í Hárkúr hylkjunum, en skortur getur valdið því að hárið verði slitið og líflaust eða öðrum truflunum á eðlilegum hárvexti.

2.Nota djúpnæringu td. frá Redken. Keypti mína dollu fyrir ca3 árum á 6þúsund og hún er ekki ennþá búin! Reyni að nota hana 1-2 í viku. Það má sofa með efnið í hárinu. Ég bleyti endana, tek smá efni og nudda í, svo flétti ég í tvær fléttur og fer að sofa. Daginn eftir skola ég djúpnæringuna úr.



3.Skola hárið með köldu vatni, allsekki brennandi heitu því það þurrkar það. Einnig að reyna að þvo það ekki á hverjum degi annars eyðileggur maður eðlilega sýrustigið í hársvörðinum. Að þvo hárið á hverjum degi er ástæðan fyrir því að hársvörðurinn verður fitugur svona fljótt. Gott er að venja sig á það að þvo hárið MAX 3 í viku og skola það með köldu vatni.

Þetta var í rauninni það eina sem ég gerði þegar ég var að safna hári og voila, allt í einu var ég komin með helling af hári! En núna er ég 90% búin að ákveða að klippa mig stutthærða. Spurningin er bara hvort ég eigi að gera það fyrir jól eða eftir áramót.




 -hannaleam.






Friday, December 5, 2014

❄❄❄

Var vakin klukkan fjögur í morgun af litlum vælupúka. Depill vældi og vældi og vældi. Stóð upp pirruð og henti honum út og reyndi svo að sofna aftur. 10mín seinna var hann vælandi fyrir utan og klórandi í kattalúguna sína. Stóð þá upp aftur og hleypti honum inn, held að lúgan hafi verið frosin. Eftir þetta gat ég sofnað og tók upp bókina sem ég er að lesa, "Ég man þig" eftir hana Yrsu. Er búin með svona 1/4 af bókinni og hún er byrjuð að vera drungaleg, rosalega er ég fegin að hafa Sigvalda sofandi við hliðin á mér því ég held ég myndi ekki meika að lesa hana ein. Ágætt að vakna svona snemma því ég er hvort sem er að fara að mæta á næturvakt í kvöld, þannig ég verð orðin þreytt og get farið snemma að sofa fyrir vaktina.


Það er 5.desember í dag, 19dagar í jólin. Tíminn er svo fljótur að líða og rosalega er ég fegin að vera ekki í prófum á þessum tíma. Um daginn fór ég og sá "The Hunger Games - Mockingjay Part 1" og vávává hvað ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég græt mjög auðveldlega yfir myndum og þegar *spoiler alert* Katniss fer með hópnum að skoða spítalann þá grét ég, svo sorglegt atriði! Elska myndir sem hafa actually áhrif á líðan manns, dett algjörlega inn í myndina og finn svo til með karkaterunum. Núna þarf ég að bíða í heilt ár í viðbót eftir næstu og síðustu myndinni. Mæli samt með því að fólk lesi bækurnar ef það hefur ekki séð myndirnar. Vanalega nenni ég sjálf ekki að lesa bækurnar ef ég er búin að sjá myndina. Ein bók sem ég man eftir að hafa lesið þótt ég hafi séð myndina er "The Time Traveler's Wife", varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum enda mikill aðdáendi myndarinnar.





Hvað segiði um annan óskalista? Haha vona að þið séuð ekki komin með leið á því. Getið nýtt ykkur þetta sem jólagjafahugmyndir...


1. Garnera tveggja hæða bakki. Hvítt - Ikea 3950kr. 2. Faunscape Wolf - Esja Dekor 12990kr. 3. Kertastjaki POV vegg/svartur - Epal 6500kr. 4. Loðhúfa - F&F 1790kr. 5. Skjalm P kopar kúlur - Snúran.is 3600kr. 6. Bob Noon Me and my queen  - Snúran.is 19900kr. 7. Blússa - Lindex 3995kr. 8. Glacier Peysa - F&F 5990kr. 9. Vikampa l/s dress - VILA 9990kr. 10. Viraun strap top - VILA 4990kr. 11. Raven necklace - Aurum 29341kr. 12. Raven earrings - Aurum 15374kr. 13. Diva - MAC 4790kr. 14. Elephant Take Away - INDISKA 1795kr.


-hannaleam.