Wednesday, November 19, 2014

Tónlistin

Ég myndi kalla mig tónlistar alætu. Ég fíla bara svo rosalega mikið af allskonar tónlist. Hef aldrei skilið það hvernig fólk getur td. fílað bara rokk eða bara hiphop. Hvað þá ef það fílar bara einn artista og hlustar stanslaust á sama diskinn, ekki myndi ég meika það. Elska að finna ný eða gömul lög á youtube. Veit ekki hvað það er sem lætur mig fíla lagið, i just do (góð pæling). Þótt ég hlusti oftast á Fm957 í bílnum, hlusta ég ekkert endilega á þessi lög í tölvunni. Eða skiljiði hvað ég meina? Finnst oft fólk halda að maður eigi engan tónlistarsmekk einungis því maður stillir á fm í bílnum eða við heimilisþrifin. Hef oft lent í því að uppgvötva eitthvað lag í bíómynd og ég verð að finna það í tölvunni svo ég geti hlustað á það á repeat. Næ líka í heilt album með lögum úr bíómynd. Síðast var það td. Divergent albumið, ótrúlega góð lög voru notuð í þeirri mynd.


Tove Lo aka Ebba Tove Elsa Nilson fædd 1987 er sænk söngkona sem varð fræg fyrir lagið sitt "Habits (Stay High)" sem er búið að vera nonstop á fm. Ekki komið nóg haha? Hún var að gefa út nýtt album sem heitir "Queen of the Clouds" sem inniheldur lagið "Talking Body". Rakst á það rétt áðan, tónlistin og textinn hreif mig strax. Njótið!



Er búin að vera vinna síðan á sunnudaginn og á morgun á ég loksins frídag! Vá hvað mig hlakkar til að sofa út, taka íbúðina í gegn og njóta dagsins. Það þarf aaaðeins að slappa af, stundum finnst mér stressið vera að kæfa mig.

-hannaleam.

Tuesday, November 18, 2014

Jóla-Óskalisti

Ég var beðin um að henda í einn jóla-óskalista (engin sérstök röð) og auðvitað hlýði ég. Svo á ég líka afmæli í febrúar *blikkblikk*





1. Allegiant by Veronica Roth - Nexus 1999kr. 2. Múmínbolli Ást - LífogList 3580kr. 3. Múmínbolli Snorkstelpan - LífogList 3589kr. 4. Krummi svartur (m.löngum stálvír) - Kraum.is 5900kr. 5. Groggy bakki 38cm ryðfrítt stál - Ikea 1550kr. 6.  Vínrautt fléttuhárband (afsaka lélegu myndina) - "Hárbönd" á Facebook 1500kr. 7. Keep Cup (Stórt mál) - Te og Kaffi 2599kr. 8. Teegg Grátt - LífogList 2450kr. 9. Regnhlíf. 10. For life Stump teketill - Kaffitár 5150kr. 11. Real Techniques Base Shadow Brush - Hagkaup ca.2000kr? 12. Skurar kertastjak 11cm hvítt - Ikea 390kr. 13. L'Oréal CC Cream Anti Redness - Hagkaup ca3000kr? 14. Rosendahl GC 2stk Hvítvín Bordeaux - LífogList 3680kr. 15. Pernilla lysgraÅ - ILVA 4900kr. 16. Real Techniques Base Shadow Brush - Hagkaup ca.2000kr?

----------------------------------------------------------------------------------------

Annars er þessi vika rosalega erfið fyrir mig, margt í gangi og stór tímamót. Ég vona bara að ég lifi fram í næstu viku. Óþægilegt að geta ekki farið út úr húsi án þess að hafa áhyggjur af íbúðinni sinni, koma kanski heim og það er búið að brjóta og bramla eða brenna allt niður. Æðislegt að lifa við þessa ógn, er gangandi stressbolti. Mig hlakkar svo til... 2016? Þá verður þetta allt saman vonandi búið. Held ég meiki ekki meir af þessu rugli..


-hannaleam.

Friday, November 14, 2014

Anime?

"Anime (アニメ) eða japanskar teiknimyndir er sá flokkur teiknimynda sem framleiddur er í Japan og byggir á sama teiknistíl og japanskar myndasögur, manga. Mikið af anime þáttaröðum og kvikmyndum eru framleiddar fyrir yngri kynslóðina en einnig eru framleitt blóðugra og grófara efni en það sem vestrænn hugsunarháttur á við að venjast. Þó má ekki misskilja það á þann hátt að allt anime sé gróft og blóðugt. Mikill hluti af þess eru rómantískar sögur og drama"


Þetta verður svoldið langt blogg.. Ég held ég hafi verið svona 9 eða 10ára þegar ég byrjaði að horfa á anime. Það var stór gervihnattadiskur á svölunum hjá okkur og þá gat ég horft á þýskar sjónvarpsstöðvar (Super Rtl, Rtl og Rtl2). Þessar stöðvar sýndu mikið af anime þáttum og ég heillaðist strax! Eitt af fyrstu þáttunum sem ég horfði á voru td. Sailor Moon, Dragonball, Inuyasha, Kamikaze Kaito Jeanne, Ranma 1/2 og Wedding Peach (allt anime fyrir börn). Þjóðverjar talsetja gjörsamlega allt og þar sem ég kunni dönsku sem er ekkert ólík þýskunni (bjó í Dk á tímabili, var þar í leikskóla & grunnskóla) lærði ég þýskuna með því að horfa á sjónvarpið. 

Sailor Moon / Dragonball / Inuyasha / Kamikaze Kaito Jeanne

 Það sem heillar mig mest við anime er hvað Japanar eru með æðislegt ímyndunarafl! Söguþræðirnir í flestum þáttunum eru magnaðir. Ekkert af þessu er líkt efninu sem bandaríkjamenn framleiða sem sumir segja að sé allt eins og sé svo fyrirsjáanlegt. Ef þið eruð komin með leið á öllu öðru efni mæli ég eindregið með því að þið gefið anime séns. Margir halda að þetta sé einungis fyrir börn en það er ömurlegur misskilningur. Sumar seríurnar eru viðbjóðslegar og ef börn væru látin horfa á þetta held ég að þau myndu nú bara skemmast til lífstíðar. Ef þið eruð til í að gefa anime séns ættuð þið að byrja að horfa á þætti sem heita Death Note, þeir eru bulletproof! Einnig er kvikmyndin Spirited Away frá Studio Ghibli æðisleg, mynd sem ég horfi alltaf á þegar ég er með flensu og lítil í mér.



Hérna er listi yfir nokkrum uppáhalds anime þáttunum mínum:


Death Note - 2006.
"An intelligent high school student goes on a secret crusade to eliminate criminals from the world after discovering a notebook capable of killing anyone whose name is written into it."

-------------------------------

Attack on Titan - (Shingeki no Kyojin) - 2013.
"After his hometown is destroyed and his mother is killed, young Eren Jaegar vows to cleanse the earth of the giant humanoid Titans that have brought humanity to the brink of extinction."

-------------------------------

Ouran High School Host Club - (Ôran kôkô hosutobu) - 2006.
"Fujioka Haruhi wins a scholarship to attend Ouran Academy, a school reserved for only the most rich and prestigious. Despite what other students may think of her, she cares little for physical appearances or the fact that she is a commoner. Unfortunately for Haruhi, her high school days take a sudden turn when she stumbles upon the Host Club, an elite club filled with super rich and beautiful boys who use their specific traits and charms to entertain young ladies."


------------------------------- 

Tokyo Ghoul - 2014.
"Ghouls are terrifying creatures which feed on human flesh. When Kaneki is almost killed in an attack, he transforms into a half-ghoul, half-human hybrid and is forced to adapt to their lifestyle in order to survive."


-------------------------------

Maid Sama! - 2010.
"Misaki Ayuzawa is the first female student council president at a once-all-boys-turned-co-ed school. She rules the school with a strict discipline demeanor, but she has a secret: she works at a maid cafe due to her family's circumstances. One day, the popular A-student and notorious heart-breaker Takumi Usui finds out her secret and makes a deal with her to keep it hush from the school in exchange for spending some time with him." 


-------------------------------
"After being falsely convicted for the murder of his entire class, a young man must learn to survive in a mysterious prison with a perverted take on incarceration while also looking to clear his name."


-------------------------------

XXX-HOLIC - 2006.
"Kimihiro Watanuki, a high-schooler, is troubled by monsters and spirits who are magically attracted to him. However, nobody else can see them but him. One day, Watanuki stumbles into a shop that grants wishes, and encounters Yuko Ichihara, a beautiful, seemingly all-knowing witch."


-------------------------------

Parasyte: The Maxim - (Kiseijû: Sei no kakuritsu) - 2014.
"The 17-year-old Izumi Shinichi lives with his mother and father in a quiet neighborhood in Tokyo. One night, worm-like aliens called Parasytes invade Earth, taking over the brains of human hosts by entering through their ears or noses. One Parasyte attempts to crawl into Shinichi's ear while he sleeps, but fails since he is wearing headphones."


-------------------------------

Ergo Proxy - 2006.
"In a post-apocalyptic future humans live in peace with androids in a domed city. However, a strange series of murders has intruded into bored inspector Re-l Mayer's life."  


-------------------------------

Elfen Lied - 2004.
"University students Kohta and Yuka (Kohta's cousin) save a Diclonius girl called "Lucy" when they see her naked in a beach. In fact "Lucy" is a serial killer who is being searched by the government but they are not aware of who "Lucy" really is because her personality is split."


-------------------------------

Ghost Hound - 2007.
"The experiences of three boys who have had traumatic experiences in childhood from which they have learned to transfer their souls to a parallel world known as the "Unseen World"."


-------------------------------

Nana - 2006.
"Komatsu Nana moves to Tokyo, after a break-up. On the train, she meets Osaki Nana, the vocalist of a Punk band, who is also moving there. The two girls end up becoming flat mates and together they support each other, while facing life." 


-------------------------------

Mushishi - 2005.
"They are neither plants nor animals. They differ from other forms of life such as the micro-organisms and the fungi. Instead they resemble the primeval body of life and are generally known as "Mushi". Their existence and appearance are unknown to many and only a limited number of humans are aware of them. Ginko is a "Mushi-shi" who travels around to investigate and find out more about the "Mushi". In the process, he also lends a helping hand to people who face problems with supernatural occurrences which may be related to the "Mushi"."


-------------------------------

Bleach - 2004.
"High school student Kurosaki Ichigo is unlike any ordinary kid because he can see ghosts. After an accident with a hollow, he got shinigami powers. So begins Kurosaki Ichigo's training and duty as a Shinigami, Soul Reaper."


-------------------------------


Nú er þetta orðið alltof mikið! Gæti bætt helling við en læt þetta duga. 

-hannaleam.

 
 

F&F

Kíkti í Kringluna í gærkvöldi og stoppaði við í Hagkaup. Vávává hvað F&F deildin er flott! Endalaust af fallegum vörum, þar geta sko allir fundið eitthvað við sitt hæfi. F&F vörumerkið er fatalína sem tilheyrir Tesco, F&F stendur fyrir Florence (kvenmenn) og Fred (karlmenn). Mér finnst líka verðin ekkert rosalega há miða við aðrar búðir. Mæli eindregið með því að kíkja við.

F&F Hooded Duffle Coat

Það var mikið af flottum yfirhöfnum og ég koféll fyrir einni sem ég varð að máta! Ég mun bara eiga hana í hausnum haha. Hún kostar 9990kr en £39.00 í Bretlandi sem er 7638kr þannig það væri aðeins ódýrara að kaupa hana úti.

Afsaka léleg gæði


Þessari búð mun ég bæta inní kringlurúntinn minn.

-hannaleam.



Thursday, November 13, 2014

Tax Free Dagar!

Allar snyrtivörur, allur fatnaður, allt jólaskraut, öll leiföng, allar bækur og öll búsháhöld eru án virðisaukaskatts (20,32%) dagana 13. - 17. nóvember í Hagkaup.

Skellið ykkur og klárið nokkrar jólagjafir nú eða gefið ykkur sjálf.

Hérna er listi yfir snyrtivörum sem ég væri til í að næla mér í:


 1. L'Oréal - Sublime Glow Seansational Cleansing Oil. 2. Maybelline - Color Elixir - Rasberry Rapsody. 3. L'Oréal - Voliminous Miss Manga Mascara. 4. Maybelline - Brow Drama. 5. L'Oréal - Magic Lumi Primer. 6. L'Oréal - CC Cream Anti Redness. 7. Maybelline - Color Drama Lipstick - Berry Much / Minimalist. 8. Sally Hansen - Complete Salon Manicure. 9. Maybelline - Color Sensational - Hollywood Red. 10. Real Techniques - Base Shadow Brush. 11. L'Oréal - Super Liner Perfect Slim. 12. Artdeco - Ultra Rich Night Repair Cream for Nails. 13. Sally Hansen - Nails & Cuticles Hand Creme. 14. Neutrogena - Oil Free Acne Wash. 15. L'Oréal - Million Lashes So Couture. 16. Maybelline - 24 Hour Color Tattoo. 17. Real Techniques -  Contour Brush.


-hannaleam.

Wednesday, November 12, 2014

The Hunger Games

Næst síðasta Hunger Games myndin er frumsýnd þann 21.nóv!

Þegar fyrsta myndin kom í bíó flýtti ég mér að lesa bækurnar, las semsagt allar 3 bækurnar á viku og fór svo á fyrstu myndina í bíó. Var rosalega ánægð með fyrstu myndina því það kom mér á óvart hvað nánast allt var eins og í bókinni. Það eina sem ég tók eitthvað eftir að væri öðruvísi var bara það að maður gat nátla ekki séð eða heyrt hvað karakterarnir voru að hugsa eins og í bókinni. Hef líka heyrt að fólk sem hafði ekki lesið bókina áttu erfitt með að skilja hvað var í gangi í myndinni. En allavega nú er loksins næsta myndin að koma og ég fer klárlega á hana í bíó. Finnst gaman að lesa bók og fara svo á myndina í bíó til að sjá svo hvort það sé mikill munur. Þegar ég las síðustu bókina var ég í smá sjokki afþví hún er svo brútal, er búin að hlakka mjög til að sjá hvernig þau fara að þessu í lokamyndunum. Er með algjört crush fyrir Josh Hutcherson og Jennifer Lawrence, finnst þau fullkomin!

Hérna er trailerinn:
 


Myndin var frumsýnd þann 10.nóv í London:
Jennifer Lawrence & Josh Hutcherson

Liam Hemsworth & Julianne Moore


Elizabeth Banks & Natalie Dormer

-hannaleam.

Tuesday, November 11, 2014

JólaJóla

Núna eru einungis 43 dagar í jólin og mig hlakkar svo til! Klæjar í puttana, mig langar svo að byrja að skreyta. Er búin að kaupa nánast allar jólagjafirnar og vá hvað það er næs að vera í engu stressi. Nú get ég haft það kósý í desember, föndrað og pakkað inn jólagjöfum við góða jólatónlist. Hef aldrei verið jafn mikið jólabarn og núna. Hef alltaf viljað byrja á jólatónlistinni í fyrsta lagi 1.des en í ár er ég alveg rosalega spennt. Held líka að málið sé það að þetta er í fyrsta sinn sem ég held uppá jólin í minni eigin íbúð. Ég er ein af þeim sem hlustar vel á vinkonur mínar allt árið og ef þær nefna einhvað sérstakt sem þeim langar í reyni ég að leggja það vel á minnið fyrir jólin. Það er vanalega ekkert mál fyrir mig að kaupa jólagjafir handa ástvinum mínum og finnst það bara ánægjulegt.  



Ætla að deila með ykkur nokkur ráðum: 

Nr. 1 - 2 og 3 er að vera vel skipulögð í kringum jólin. Best er að klára gjafirnar sem fyrst svo maður hafi nú tíma til að njóta hátíðarinnar. Einnig er gott að fylgjast með öllum tilboðum, þannig er hægt að kaupa td. eitthvað sem vinkonu manns langaði svo í, á góðu verði. Gjafabréf er skotheld gjöf, það getur td. verið gjafabréf í nudd, í kringluna, út að borða eða í leikhús. Einnig er sniðugt að gefa ostakörfur og eða vín fyrir þá sem að eiga allt. Endilega munið líka eftir því að biðja um skilamiða á gjafirnar. Ef þið hafið ekki mikið á milli handana finnst mér alltaf jafn flott að gefa mynd í ramma, td. af ykkur saman. Svo er einnig hægt að skrifa eitthvað orðatiltæki, inspo, quote eða jafnvel teikna mynd og setja í rammann.

Það er oft sem pökkunarborðið í kringlunni er troðið, finnst óþægilegt að pakka inn í svona miklu áreiti. Mæli með því að taka bara gjafapappírinn og böndin með þér heim, þar geturu pakkað í friði með nóg af plássi. Svo gæti ég haldð endalaust áfram en þetta er komið gott.

Vona að þetta minnki jólastressið ykkar.


-hannaleam.